Mikið áfall fyrir Harry Kane

Harry Kane meiddist illa.

Harry Kane meiddist illa. AFP/Karl-Josef Hildenbrand

Enski landsliðsfyrirliðinn Harry Kane verður frá keppni næstu þrjá mánuðina eftir að hafa meiðst á ökkla í leik Bayern München gegn Köln í þýsku Bundesligunni í fótbolta í gærkvöldi.

Sky Germany greinir frá því að Max Eberl, íþróttastjóri Bayern, hafi staðfest skömmu eftir 1:1-jafnteflið að Kane væri með slit á liðbandi í ökklanum. Kane fór meiddur af velli eftir aðeins 20 mínútna leik.

Kane hefur farið á kostum með Bayern á tímabilinu og vann Gullboltann á dögunum.

Englendingurinn hefur skorað tíu mörk og lagt upp önnur ellefu í sextán leikjum á yfirstandandi tímabili.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab