11 látnir og 180 á spítala: Drukku mengað áfengi
Yumnam Khemchand Singh heimsækir mann sem var lagður inn á sjúkrahús eftir að hafa neytt ólöglegs áfengis. AFP/Vishma Ahanthem
Að minnsta kosti ellefu manns hafa látist og yfir 180 hafa verið lagðir inn á sjúkrahús eftir að hafa drukkið áfengi sem grunur leikur á að hafi verið mengað í Manipur-ríki í norðausturhluta Indlands.
Fórnarlömbin veiktust eftir að hafa neytt áfengisins, sagði Yumnam Khemchand Singh, forsætisráðherra ríkisins, í yfirlýsingu í gær.
„Yfir 180 sjúklingar hafa verið lagðir inn á sjúkrahúsin tvö hingað til, en tala látinna er komin í 11 á síðustu 48 klukkustundum,“ sagði í yfirlýsingunni.
Hann fyrirskipaði einnig rannsókn á atvikinu og sagði að þeir sem bæru ábyrgð yrðu handteknir og þeim refsað.
Reglulega berast fréttir af dauðsföllum af völdum ólöglegs eða mengaðs áfengis á Indlandi, þar sem ódýrt áfengi sem selt er utan löglegra söluleiða getur innihaldið metanól, afar eitrað iðnaðarefni.
Í maí létust að minnsta kosti 15 manns eftir að hafa drukkið ólöglegt áfengi blandað metanóli í Pune og nágrannaborginni Pimpri-Chinchwad í Maharashtra-ríki í vesturhluta landsins.
Í ágúst létust 13 manns og yfir 60 veiktust eftir að hafa neytt metanólmengaðs áfengis í Bhavnagar-héraði í Gujarat, samkvæmt fréttum fjölmiðla á staðnum.
Slíks áfengis er víða neytt um allt Indland, þar sem flaskan er stundum seld fyrir minna en dollara, sem jafngildir 127 krónum. Sé metanóls neytt getur það valdið blindu, lifrarskemmdum og, í meira magni, dauða.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
