Ók á 126 kílómetra hraða eftir að hafa neytt áfengis
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt, en alls voru 72 mál skráð í kerfi hennar frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.
Alls voru tíu ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.
Einn ökumaður var stöðvaður eftir að hafa ekið á 126 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund. Við afskipti lögreglu blés hann einnig í áfengismæli en mældist undir handtökumörkum. Honum var engu að síður gert að hætta akstri.
Í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi voru fjórir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Þrír voru stöðvaðir af sömu ástæðu í Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ og tveir í miðborginni og nærliggjandi hverfum.
Í Kópavogi eða Breiðholti var ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum bæði áfengis og fíkniefna. Sá reyndist jafnframt vera án ökuréttinda og var kærður fyrir nokkur önnur umferðarlagabrot.
Lögregla var einnig kölluð til á krá vegna manns sem lét þar ófriðlega. Ekki gekk að ræða við manninn og var hann því vistaður í fangaklefa vegna ástands síns.
Þá var lögregla kölluð til vegna þjófnaðar í verslun og voru nokkrir ökumenn kærðir fyrir minniháttar umferðarlagabrot.
Tveir voru í fangageymslu lögreglu þegar dagbókin var tekin saman í morgun.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗