Gerði áður grín að fólki sem bjó sig undir hamfarir – Nú er hún sjálf farin að safna birgðum
Breski pistlahöfundurinn Annabel Fenwick Elliott gerði áður grín að fólki sem safnaði neyðarbirgðum og bjó sig undir stórfelldar hamfarir. Nú er hún sjálf komin í þann hóp og hefur ásamt eiginmanni sínum komið sér upp matarbirgðum til margra mánaða.
Í pistli sem birtist í breska blaðinu Daily Mail lýsir Elliott vaxandi ótta sínum við að eitthvað stórt og slæmt sé í uppsiglingu. Hún segist jafnframt hafa rætt við vini í áhrifastöðum sem deili áhyggjum hennar.
Elliott vísar meðal annars til truflana á tölvukerfum Microsoft, bandarískra flugmálayfirvalda, stórra fjármálastofnana og greiðsluþjónustunnar Apple Pay. Það hafi vakið athygli hennar að allar þessar truflanir hafi komið upp á aðeins sex dögum.
Safna mat og reiðufé
Í pistli sínum segir hún að þau hjónin hafi komið sér upp geymum fyrir drykkjarvatn og þá hafi þau keypt talstöðvar, eldspýtur, boga og örvar og birgðir af mat sem ættu að duga í einhverja mánuði. Þá bendir hún á að hún sé farin að taka reglulega út reiðufé úr hraðbönkum.
Elliott þykir einnig athyglisvert að stjórnvöld í að minnsta kosti 33 ríkjum hafi gefið út leiðbeiningar þar sem almenningur er hvattur til að eiga matarbirgðir, drykkjarvatn og aðrar nauðsynjar á heimilum sínum.
Bresk stjórnvöld hafa meðal annars hvatt heimili til að eiga nauðsynjar til þriggja daga. Sambærilegum viðbúnaðarleiðbeiningum var dreift til íslenskra heimila í síðustu viku.
Tekið skal fram að slíkar ráðleggingar eru ekki í sjálfu sér vísbending um yfirvofandi hamfarir heldur er þeim ætlað að gera almenningi kleift að takast á við ýmiss konar neyðarástand, svo sem náttúruhamfarir, rafmagnsleysi eða rof á annarri nauðsynlegri þjónustu.
Breytt viðhorf
Elliott hefur sérstakar áhyggjur af öryggisógnum sem fylgja örri þróun gervigreindar.
Hún segist hafa rætt við reyndan hugbúnaðarverkfræðing sem sagði ekkert benda til þess að stórfelldar hamfarir væru yfirvofandi. Hann taldi þó óhjákvæmilegt að gervigreind myndi leiða til tíðari netárása.
Elliott viðurkennir að áður fyrr hafi henni jafnvel þótt tilhugsunin um hrun samfélagsins spennandi. Hún hafi haft mikið dálæti á kvikmyndum og sjónvarpsþáttum um heimsendi og talið sig vel í stakk búna til að takast á við slíkar aðstæður.
Viðhorf hennar hafi hins vegar gjörbreyst eftir að hún eignaðist börn.
Hún segist jafnvel vera farin að velta því fyrir sér hvort nokkur tilgangur sé með því að bóka sumarfrí á næsta ári.
Í lok pistilsins óskar hún eftir ráðleggingum frá lesendum um hvernig best sé að búa sig undir umfangsmiklar hamfarir. Hún sé nú orðin ein þeirra sem hún gerði áður grín að.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗