„Einhvers staðar þurfa menn að stoppa í því að sleikja rassgöt á svona fólki“
Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni, sem kemur út alla föstudaga.
JJ Gabriel, 16 ára strákur, hefur undanfarið gert allt vitlaust hjá Manchester United og er hann á leið í Real Madrid. Tilkynnti hann um brottför sína frá United í vikunni, en hann er ósáttur við að fá ekki tækifæri með aðalliðinu. Birti hann dramatískt kveðjumyndband ásamt gervigreindarmyndbandi um að hann væri búinn að skrifa undir hjá nýrri umboðsskrifstofu.
„Þessi gæi verður bara kominn í Þrótt Vogum eftir 2-3 ár miðað við hausinn á honum,“ grínaðist Helgi.
„Hann er víst með sturlaða hæfileika, það segja þeir sem þekkja eitthvað til og United er búið að ganga helvíti langt til að reyna að halda honum og pabba hans, sem virðist vera rugludallurinn í þessu öllu saman, góðum.
En einhvers staðar þurfa menn að stoppa í því að sleikja rassgöt á svona fólki. Ég óttast það að hann sé með það vont fólk í ráðgjöf í kringum sig að við séum að fara að horfa upp á eitthvað Freddy Adu dæmi. Vonandi hefur maður rangt fyrir sér,“ sagði Hörður.
Þátturinn er í spilaranum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗