Rússar sakaðir um að skipuleggja morð í Danmörku – Þorgerður Katrín bregst við
Ritstjórn DV
Laugardaginn 21. nóvember 2026 09:00
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Mynd/Getty
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fordæmir harðlega meint áform Rússa um að ráða úkraínskan rappara af dögum í Danmörku.
Dönsk yfirvöld saka Rússa um að hafa lagt á ráðin um morð á úkraínsk-bandarískum rappara sem átti að koma fram á tónleikum skammt frá Kaupmannahöfn í september.
Þorgerður Katrín bregst við tíðindunum á samfélagsmiðlinum X þar sem hún segir fréttirnar frá Danmörku óhugnanlegar og fordæmir tilraunir Rússa til að beita ofbeldi á yfirráðasvæði bandalagsríkja.
Hún segir slíkar aðgerðir hvorki munu rjúfa samstöðu ríkjanna né draga úr staðfestu þeirra í stuðningi við Úkraínu.
Vopn fundust í bifreið
BBC greinir frá því að danska öryggis- og leyniþjónustan PET hafi komið í veg fyrir fyrirhugaða árás á rapparann Kyivstoner, sem heitir réttu nafni Albert Vasiliev.
Þrír einstaklingar voru stöðvaðir í bifreið nærri tónleikastaðnum þar sem rapparinn átti að koma fram 25. september. Skotvopn og hnífar fundust í bifreiðinni.
Samkvæmt PET tengjast þeir sem grunaðir eru um aðild að málinu dönsku glæpasamtökunum Loyal to Familia sem eru alræmd fyrir ofbeldisfulla glæpastarfsemi.
Tveir einstaklingar hafa verið ákærðir fyrir tilraun til manndráps og aðstoð við erlenda leyniþjónustu. Báðir neita sök.
Rússneskum embættismanni vísað úr landi
Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, segir fyrirhugaða árás tilraun Rússa til að ógna Dönum og grafa undan stuðningi þeirra við Úkraínu.
Danska ríkisstjórnin hefur ákveðið að vísa varnarmálafulltrúa rússneska sendiráðsins úr landi og hefur hann fengið sjö daga frest til að yfirgefa Danmörku.
Rússneska sendiráðið hafnar ásökununum og segir engin gögn hafa verið lögð fram sem sýni fram á aðild yfirvalda Moskvu að málinu. Rússnesk stjórnvöld hafa jafnframt boðað viðbrögð við brottvísuninni.
Í júlí sakaði rússneska öryggisþjónustan FSB rapparann Vasiliev og úkraínsk yfirvöld um að hafa skipulagt hryðjuverkaárásir gegn rússneskum hermönnum og hernaðarmannvirkjum. Vasiliev vísaði þeim ásökunum á bug.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗