Bækur í brennidepli á Bókahátíðinni í dag
Starfsmenn forlaganna á fullu að taka bækur upp úr kössum fyrir Bókahátíðina í Hörpu í dag. mbl.is/Karítas
Bókaútgefendur voru síðdegis í gær í óðaönn að undirbúa Bókahátíðina sem fram fer í Hörpu í dag og á morgun kl. 11-17 báða dagana. Þar kynna íslenskir útgefendur jólabókaflóðið, höfundar spjalla við lesendur, árita bækur og lesa úr verkum sínum. Streymt verður frá upplestri um 70 höfunda á mbl.is klukkan 12-17 báða dagana.
Boðið verður upp á veglega barnadagskrá, ljóðalestur, þýðendaspjall og viðtöl við sex erlenda gestahöfunda auk þess sem gestir geta nælt sér í eintak af nýprentuðum Bókatíðindum.
Menningardeild Morgunblaðsins hefur veg og vanda af veglegri bókmenntadagskrá þar sem 17 höfundar taka þátt í sex pallborðum um nýútkomnar bækur. Bókahátíðin hefur notið mikilla vinsælda á síðustu árum og má til gamans geta þess að um 8.400 manns lögðu leið sína á hátíðina í Hörpu í fyrra, sem var metaðsókn.
Bókmenntadagskrá menningardeildar Morgunblaðsins á hátíðinni má nálgast hér.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
