Sakfelldur vegna gróðurelda í Los Angeles

Slökkviliðsmenn að störfum í fyrra vegna gróðureldanna.

Slökkviliðsmenn að störfum í fyrra vegna gróðureldanna. AFP/Josh Edelson

Kviðdómur í Bandaríkjunum sakfelldi í gær mann fyrir að hafa kveikt eld á gamlárskvöld sem varð að einum af þó nokkrum mannskæðum gróðureldum í Los Angeles á síðasta ári og kostaði 12 manns lífið í Pacific Palisades.

Þetta voru önnur alríkisréttarhöldin yfir Jonathan Rinderknecht, 30 ára, eftir að fyrsta tilraun ákæruvaldsins endaði með því að kviðdómurinn náði ekki samstöðu og réttarhöldin voru ómerkt.

Til stendur að kveða upp refsingu yfir Rinderknecht, sem er fyrrverandi Uber-bílstjóri, 17. mars. Hann á yfir höfði sér allt að 40 ára fangelsi.

Fyrr á þessu ári voru tíu af tólf úr kviðdómi tilbúnir til að sýkna Rinderknecht, en kviðdómur verður að vera einróma í niðurstöðu sinni.

AFP/Apu Gomes

Kviðdómendum í seinni réttarhöldunum var fyrirskipað að taka hvorki tillit til fyrri málsmeðferðar né neinnar umfjöllunar um hana þegar þeir kæmust að niðurstöðu.

Úrskurðurinn í gær varðaði tvo ákæruliði: eignaspjöll með eldi og íkveikju sem hafði áhrif á eignir sem notaðar eru í viðskiptum milli ríkja.

Rinderknecht hafði neitað sök í báðum ákæruliðum.

Eftir um tveggja daga umhugsun komst kviðdómurinn að þeirri niðurstöðu að hann hefði notað kveikjara til að kveikja gróðureld í grennd við hið auðuga Pacific Palisades-hverfi, sem liggur að Malibu.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab