Segir launaskrið ekki meira hjá hinu opinbera

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir launaskrið ekki vera sérstaklega hjá hinu opinbera umfram almenna vinnumarkaðinn. 

Hún ræddi við blaðamann að loknum ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. 

Þá segist hún hafa fengið kynningu frá kjaratölfræðinefnd í fyrradag þar sem farið var yfir launaskrið og tengda launaþætti.

Ekki einfaldur samanburður

„Það sem kemur í ljós í greiningu kjaratölfræðinefndar er að það er ekkert alveg einfalt að bera saman almenna og opinbera markaðinn,“ segir hún í samtali við mbl.is.

Hún segir kjarasamninga gerða með ólíkum hætti: „Sumt er fastara í hendi, annað eru óbeinar greiðslur, samningsbundið, starfsaldurstengt og síðan er auðvitað eitthvað mat á launaskriði.“

Þá segir hún þær tölur sem hún hefur séð sýna fyrst og fremst að það hafi verið miklar launahækkanir almennt á Íslandi. 

„Frá því að síðustu kjarasamningar voru gerðir er þetta kannski hjá flestum hópum í kringum 20% í heild sinni,“ segir hún og heldur áfram: „Það hefur auðvitað komið til meðal annars vegna þess að fólk hefur séð almennt verðlag rísa og vexti hækka og maður skilur alveg að fólk vilji bæta sér það upp.“

Stóra fréttin að það þurfi svona miklar launahækkanir

Kristrún segir stóru fréttina vera að hér sé umhverfi þar sem þurfi svona miklar launahækkanir til þess að halda í við kaupmátt. Þá hafi líka sést í kaupmáttargreiningum að kaupmáttur allra tekjutíunda standi vel og hafi þróast á þessu tímabili.

„En launaskrið í þeim tölum, sem ég sá að minnsta kosti í gær, er ekkert sérstaklega hjá hinu opinbera umfram almenna markaðinn,“ segir hún. 

„Þetta er í rauninni bara dýnamík sem er að eiga sér stað í flestum samningum með aðeins ólíkum hætti. En auðvitað þurfum við að passa upp á þetta hjá hinu opinbera eins og hjá almenna markaðnum.“

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab