Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms

Spáð er hvassviðri eða stormi.

Spáð er hvassviðri eða stormi. Kort/Veðurstofa Íslands

Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir höfuðborgarsvæðið, Faxaflóa, Breiðafjörð, Suðurland og miðhálendið vegna suðaustan hvassviðris eða storms. 

Viðvörunin tekur gildi á Suðurlandi klukkan 20 í kvöld en á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóa og miðhálendinu klukkan 21. Á Breiðafirði tekur hún gildi klukkan 2 í nótt.

Á höfuðborgarsvæðinu verður suðaustan hvassviðri, 15-20 m/s og rigning. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll sem staðbundið geta farið yfir 35 m/s, einkum nærri Esju. Veðrið er varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.

Á Suðurlandi verður hvassviðri eða stormur, 15-23 m/s og rigning, hvassast á Reykjanesi og undir Eyjafjöllum. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll sem staðbundið geta farið yfir 35 m/s. Veðrið er einnig varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.

Frá veginum undir Eyjafjöllum.

Frá veginum undir Eyjafjöllum. mbl.is/Jónas Erlendsson

Á miðhálendinu verður hvassviðri eða stormur, 15-23 m/s, og snjókoma eða slydda og síðar rigning. Búast má við vindhviðum allt að 35-40 m/s. Aðstæðurnar eru varasamar eða hættulegar fyrir ferðamenn og útivistarfólk. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.

Á Breiðafirði verður hvassviðri eða stormur, 15-23 m/s, og rigning, hvassast á Snæfellsnesi. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll sem staðbundið geta farið yfir 35 m/s. Veðrið er varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.

Veðurvefur mbl.is

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab