Gamla ljósmyndin: Hlífarnar
Íþróttadeild Morgunblaðsins og mbl.is heldur áfram að gramsa í myndasafni Morgunblaðsins og birta á mbl.is á laugardögum.
Á leikmannaferlinum var einkennandi fyrir þrautreyndan landsliðsmann, Guðmund Þ. Guðmundsson, að leika með hlífar á hnjám og olnbogum. Ekki hitahlífar eins og síðar komu meira til sögunnar, heldur púða til að verja hné og olnboga, þegar menn lentu í gólfinu. Undir dúkunum í íþróttahúsunum í þá daga gátu til að mynda verið hörð steingólf.
Tímaritið Íþróttablaðið gantaðist með að kalla mæti hornamanninn Guðmund Hlífar vegna þessa en líklega var þessu kastað fram um leið og Hannes Hlífar varð landsfrægur eftir sigur á heimsmeistaramóti unglinga í skák.
Á meðfylgjandi mynd sjást hlífarnar vel en þar er Guðmundur kominn í dauðafæri í leik með Víkingi gegn ÍR og leikurinn virðist fara fram í Seljaskóla. Fyrir aftan Guðmund má sjá ÍR-inginn Magnús Matthíasson sem lék gjarnan þá list að leika sem rétthendur leikmaður í hægra horni.
Á móti Guðmundi mætir Skagfirðingurinn Hrafn Margeirsson og freistar þess að verja skotið. Myndin er tekin á seinni hluta níunda áratugarins en Hrafn var efnilegur markvörður og var þriðji markvörður Íslands í sigrinum í B-keppninni í Frakklandi árið 1989. Síðar setti hálsbrot á landsliðsæfingu strik í reikninginn hjá honum þótt Hrafn hafi samt sem áður átt langan feril í efstu deild þegar uppi var staðið.
Ekki liðu mörg ár eftir þessa myndatöku þar til Hrafn var farinn að leika með Guðmundi, og undir stjórn Guðmundar, hjá Víkingi þegar Guðmundur var orðinn spilandi þjálfari hjá uppeldisfélaginu. Hrafn gekk í raðir Víkings tímabilið 1989/90 og tímabilið eftir fór liðið til að mynda í bikarúrslit en tapaði þar fyrir ÍBV í frægum leik.
Myndina tók Einar Falur Ingólfsson sem var iðinn við kolann með myndavélina fyrir Morgunblaðið í áratugi.
Guðmundur Þ. Guðmundsson er í seinni tíð þekktari sem þjálfari en leikmaður en hann átti fínan feril sem leikmaður. Var tvöfaldur ólympíufari sem dæmi, 1984 í Los Angeles og 1988 í Seúl, en Ísland hafnaði í 6. og 8. sæti á þessum leikum. Hann var einnig áberandi þegar handboltalandsliðið hafnaði í 6. sæti á HM í Sviss 1986 og í B-keppninni 1989 sem áður hefur verið minnst á.
Guðmundur var margfaldur Íslands- og bikarmeistari með Víkingi og liðið náði langt í Evrópukeppnum félagsliða en Guðmundur lék nánast allan sinn feril feril með Víkingi en kom lítillega við sögu þegar hann þjálfaði Aftureldingu. Hann freistaði aldrei gæfunnar í atvinnumennsku og gekk frekar menntaveginn meðfram handboltaiðkun.
Guðmundur var valinn Íþróttamaður Reykjavíkur árið 1986 og sama ár hafnaði hann í 3. sæti í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗