Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms
Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir höfuðborgarsvæðið, Faxaflóa, Breiðafjörð, Suðurland og miðhálendið vegna suðaustan hvassviðris eða storms.
Viðvörunin tekur gildi á Suðurlandi klukkan 20 í kvöld en á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóa og miðhálendinu klukkan 21. Á Breiðafirði tekur hún gildi klukkan 2 í nótt.
Á höfuðborgarsvæðinu verður suðaustan hvassviðri, 15-20 m/s og rigning. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll sem staðbundið geta farið yfir 35 m/s, einkum nærri Esju. Veðrið er varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.
Á Suðurlandi verður hvassviðri eða stormur, 15-23 m/s og rigning, hvassast á Reykjanesi og undir Eyjafjöllum. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll sem staðbundið geta farið yfir 35 m/s. Veðrið er einnig varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.
Á miðhálendinu verður hvassviðri eða stormur, 15-23 m/s, og snjókoma eða slydda og síðar rigning. Búast má við vindhviðum allt að 35-40 m/s. Aðstæðurnar eru varasamar eða hættulegar fyrir ferðamenn og útivistarfólk. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.
Á Breiðafirði verður hvassviðri eða stormur, 15-23 m/s, og rigning, hvassast á Snæfellsnesi. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll sem staðbundið geta farið yfir 35 m/s. Veðrið er varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
