Segir Pútín „morðingja“ eftir hlý orð Trumps

Pútín og Selenskí á samsettri mynd.

Pútín og Selenskí á samsettri mynd. AFP/Gavriil Grigorov og Nhac Nguyen

Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, kallaði Vladímír Pútín „morðingja“ í viðtali sem var sýnt í gær, eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti rússneska leiðtoganum sem „vini“ sínum.

„Fyrir okkur er hann óvinur og auðvitað er hann morðingi í okkar augum. Og ég held að í augum flestra í heiminum sé hann morðingi,“ sagði Selenskí við CNN þegar hann var spurður út í lýsingu Trumps á Pútín.

Trump og Pútín funduðu í Kína á miðvikudag í fyrsta sinn síðan í ágúst 2025, þar sem Trump kallaði Pútín „vin“ sinn en rússneski forsetinn svaraði á ensku: „Gaman að hitta þig.“

Trump fagnaði í gær tengslum sínum við Pútín og Xi Jinping, leiðtoga Kína, á blaðamannafundi í Hvíta húsinu.

Trump á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær.

Trump á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær. AFP/Brendan Smialowski

„Ég á í frábæru sambandi við Pútín. Það er mjög gott. Ég á í frábæru sambandi við Xi forseta. Það er gott og landið okkar er öruggt vegna þess,“ sagði Trump.

Aðspurður hvort hann teldi Pútín vera vin Bandaríkjanna sagði Trump „ég get ekki talað fyrir hönd Bandaríkjanna“ en bætti við að „mjög gott samband“ þeirra „veitir okkur mikinn aukinn styrk“.

Trump og Pútín í Kína.

Trump og Pútín í Kína. AFP/Vyacheslav Prokofyev

Hersveitir Pútíns hófu allsherjarinnrás í Úkraínu í febrúar 2022 og hrundu af stað hrikalegu stríði sem talið er að hafi kostað hundruð þúsunda manna lífið.

Bandaríkin voru helsti bakhjarl Úkraínumanna í forsetatíð Joes Biden, en Trump hefur skorið hernaðarstuðning við Úkraínu verulega niður síðan hann sneri aftur í embætti í byrjun síðasta árs.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab