Hvasst í kvöld á Suður- og Vesturlandi

Innlent | mbl | 21.11.2026 | 7:12

Hiti verður á bilinu 1 til 5 stig.

Hiti verður á bilinu 1 til 5 stig. Kort/Veðurstofa Íslands

Það verða suðaustan og austan 10 til 18 metrar á sekúndu sunnan- og vestanlands í dag og sums staðar dálítil rigning eða slydda. Hiti verður á bilinu 1 til 5 stig. Hægari vindur verður á Norður- og Austurlandi með þurru veðri og frosti.

Suðaustan 15-23 m/s verða í kvöld á Suður- og Vesturlandi með slyddu og síðar rigningu og hlýnandi veðri.

Áfram verður hvasst og vætusamt á morgun, en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hiti verður á bilinu 5 til 10 stig. Lægir á vestanverðu landinu seinnipartinn.

Veðurvefur mbl.is

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab