Stöðvaður á 126 km hraða
Lögreglan á Hverfisgötu stöðvaði ökumann sem hafði ekið á 126 km hraða þar sem hámarkshraði er 80 km/klst.
Ökumaðurinn blés einnig í áfengismæli en var undir handtökumörkum. Hann var látinn hætta akstri, að því er kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til kl. 5 í morgun.
Tveir aðrir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og/eða vímuefna. Þeir voru látnir lausir eftir sýnatöku lögreglu.
Lögreglan var einnig kölluð til vegna þjófnaðar í verslun. Málið var leyst með vettvangsskýrslutöku.
Lét ófriðlega á krá
Lögreglan sem annast verkefni í Hafnarfirði og Garðabæ stöðvaði fjóra ökumenn grunaða um akstur undir áhrifum áfengis og/eða vímuefna. Þeir voru látnir lausir eftir sýnatöku lögreglu.
Lögreglan sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti stöðvaði ökumann í akstri grunaðan um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Hann var einnig án ökuréttinda og kærður fyrir nokkur minni háttar umferðarlagabrot. Hann var látinn laus eftir sýnatöku.
Lögreglan var kölluð til á krá í hverfinu vegna manns sem lét þar ófriðlega. Ekki gekk að ræða við manninn og var hann vistaður í fangaklefa vegna ástands.
Lögreglan á Vínlandsleið stöðvaði þrjá ökumenn grunaða um akstur undir áhrifum. Þeir voru látnir lausir eftir sýnatöku lögreglu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
