Mæðgur drepnar af bjarndýrum

Brúnbirnir urðu nýlega mæðgum að bana í British Columbia í Kanada. Konurnar, sem voru 48 og 20 ára, voru í gönguferð nærri heimili þeirra í bænum Bella Coola þegar bjarndýrin réðust á þær og bönuðu.

DNA-rannsókn leiddi í ljós að það voru kvendýr og þrír húnar þess sem drápu konurnar. Í kjölfarið var ákveðið að fanga dýrin og aflífa. Í tilkynningu frá yfirvöldum segir að dýrin hafi verið aflífuð til að vernda almenning.

Jeff Tyre, yfirmaður hjá villidýraeftirliti British Columbia, sagði í samtali við AP að rannsóknin hafi sýnt að árás bjarndýranna hafi líklega verið einhverskonar rándýrs hegðun sem sé mjög sjaldgæf hjá bjarndýrum. „Það er að segja, við vitum ekki hvernig þetta byrjaði en við vitum hvernig þetta endaði,“ sagði hann.

Lík kvennanna fundust nærri göngustíg við Bella Coola og voru um 150 metrar á milli þeirra.

Brúnbirnir geta verið árásargjarnir á haustin þegar þeir eru að byggja upp fituforða áður en þeir leggjast í híði.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab