Þetta verði stóra próf Arnars með landsliðið - „Fannst það skrýtið ef forsendurnar voru að það sé skita“
Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni, sem kemur út alla föstudaga.
Arnar Gunnlaugsson og íslenska landsliðið gerðu eins og þjóðin ætlaðist til og vann riðil sinn í C-deild Þjóðadeildarinnar, þangað sem það féll í fyrra. Á næsta ári tekur við undankeppni EM og telja Helgi og Hörður að það sé stóra próf Arnars með liðið.
„Það eru allir á því að það sé skita að við séum í C-deild. Svo var maður að hlusta á sérfræðinga eftir leik og þeir voru allir sammála um að nú værum við komnir með svarið, að Arnar væri rétti maðurinn og ekki mætti efast um það lengur. Mér fannst það skrýtið ef forsendurnar voru að það sé skita að vera í C-deild, algjör skylda að fara upp úr riðlinum. Svo klárar hann sitt og þá eigum við að vera komin með svarið. Ég er alls ekki þar að við eigum að fara í þjálfaraskipti núna en ég hef samt ekkert fengið mörg svör enn þá um Arnar,“ sagði Helgi og Hörður tók undir það.
„Ég hef lýst þessu þannig að Arnar sé búinn að fara í nokkur kaflapróf en það er ekki búið að setja upp lokaprófin enn þá. Þau koma á næsta ári og þá sjáum við það svart á hvítu hvort þetta sé komið í réttan farveg. Mér finnst alveg teikn á lofti um að það sé eitthvað að gerast, því mér finnst Arnar hafa bakkað aðeins út frá því sem hann var að gera í byrjun með alls kyns færslum og flóknu dóti. Við sjáum að það eru ekki mörg landslið að fara í flókinn fótbolta því þú hefur svo lítinn tíma. Mér finnst Arnar hafa einfaldað hlutina mjög hratt og örugglega.“
Þátturinn er í spilaranum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗