Gæslan í fjársvelti
Um 900 milljóna króna skerðing á fjárheimildum blasir við Landhelgisgæslunni á næsta ári, að sögn Georgs Kr. Lárussonar forstjóra stofnunarinnar. Hann segir að stokka þurfi upp í rekstrinum. Gæslan heldur nú aðeins einu varðskipi úti að jafnaði og vantar fjórðu þyrluna til að bæta viðbúnað vegna björgunar langt úti á sjó.
Beinar fjárheimildir Gæslunnar nema um 8,2 milljörðum króna í ár. Tímabundið framlag upp á 665 milljónir fellur niður og stofnunin þarf jafnframt að mæta almennri aðhaldskröfu upp á rúmar 300 milljónir. Hækkun olíuverðs þrengir enn frekar að rekstrinum, segir Georg.
„En fari sem horfir þá er ljóst að einhverjar skerðingar verða,“ segir hann í Spursmálum. Gæslan hefur sent fjárlaganefnd erindi og stjórnendur leita leiða til að láta enda ná saman. Georg tilgreinir ekki hvaða verkefni gætu verið skert.
Gæslan þarf að hafa tvær þyrlur tiltækar til að sinna útkalli lengra en 20 sjómílur frá strönd. Önnur verður að vera til taks ef bjarga þarf áhöfn hinnar. Sá viðbúnaður er fyrir hendi um 65% tímans. Með fjórðu vélinni gæti hlutfallið farið í um 90%, að mati Gæslunnar.
Leiga fjórðu þyrlunnar og mönnun hennar myndu kosta 1,1 til 1,3 milljarða króna á ári. Georg telur Akureyri besta kostinn sem bækistöð. Þaðan mætti stytta viðbragðstímann á Norðausturlandi en áætlað er að flugskýli kosti um 600 milljónir króna.
Nánar er rætt við Georg í Sunnudagsblaðinu.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗