Frakkar forvitnir um veiðimanninn
Ný ljósmyndabók Ragnars Axelssonar, RAX, um grænlenska ísbjarnaveiðimanninn Hjelmer Hammeken hefur nú þegar selst í yfir sex hundruð eintökum í forsölu í París. Bókin, sem nefnist Veiðimaður frá Ittoqqortoormiit, kemur út á íslensku og ensku og er íslensku útgáfunnar að vænta fyrir aðventu.
RAX var gestur Spursmála í gær og ræddi þar m.a. um ljósmyndasýningar sínar í Þýskalandi, en rúmlega 100 þúsund gestir sóttu þær. Þá seldist bókin sem fylgdi sýningunum í 50 þúsund eintökum.
RAX segir að fleiri sýningar séu í bígerð hjá sér bæði hér á landi og erlendis, en hann boðar stóra ljósmyndasýningu hérlendis á næsta ári.
Í Spursmálum rakti RAX einnig hvernig það kom til að hann byrjaði að mynda lífið á Grænlandi, en RAX var þá innan við tvítugt.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗