Verða af 15 milljörðum
„Í ár fækkaði skemmtiferðaskipum um 10% frá fyrra ári. Óttast er að þessi tala hækki enn frekar á næsta ári þannig að gestum skemmtiferðaskipa hafi þá fækkað um 30% á milli áranna 2024 og 2027. Með samdrættinum í komu skemmtiferðaskipa má ætla að íslenska hagkerfið verði af 15 milljarða króna veltu á árinu 2027 miðað við árið 2024.“
Þetta segir Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag, þar sem hún lýsir þungum áhyggjum yfir skattlagningu á skemmtiferðaskip sem koma hingað til lands. Engin þjóð sé með jafn háa skatta á slík skip og Ísland.
Hún nefnir skipið Prima sem hætti siglingum hingað vegna skattsins, en skipið og farþegar þess hafi skilið eftir 5,5 milljarða hér, þ.a. 550 milljónir í virðisaukaskatt.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗