Fórnar jólunum ár eftir ár
Sænski skíðaskotfimikeppandinn Elvira Öberg segist hafa misst af jólunum með stærstum hluta fjölskyldu sinnar síðustu sjö ár, þar sem hún reynir að forðast veikindi á keppnistímabilinu.
„Ég hef ekki haldið jól með stærstum hluta fjölskyldunnar í fimm, sex, sjö ár,“ sagði hún við Sportbladet í Idre í aðdraganda nýs keppnistímabils í skíðaskotfimi.
Öberg setur svefn og mataræði í forgang og forðast mannmergð og lokuð rými þegar líður að keppni. Hún er einnig reiðubúin að sleppa fjölskyldukvöldverðum og afmælisveislum.
„En þetta er bara takmarkaður hluti lífsins. Fáir eru svo lánsamir að fá að gera það sem við gerum,“ sagði hún. „Ég lít ekki á þetta sem mikla fórn.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗