Svona á salatið að haldast ferskt í allt að mánuð

Þetta ráð þarf að prófa!

Þetta ráð þarf að prófa! Unsplash/Gabriel Mihalcea

Flestöll höfum við þurft að henda salathaus þegar brúnir blettir eru komnir á blöðin og þau farin að visna. Það er fátt verra en að þurfa að henda mat. Þó er til ráð sem á að halda salati fersku í ísskápnum í allt að einn mánuð.

Matreiðslumaðurinn Charles Kim, betur þekktur sem Chef Fatty, hefur notið mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum fyrir sniðug ráð tengd matreiðslu. Myndskeið hans, þar sem hann sýndi hvaða óvænta hráefni gerir kjúklinginn safaríkari, vakti mikla athygli. Við birtum grein um það hér á matarvefnum í ágúst.

En hvernig eigum við að geyma salathausinn? Að sögn Chef Fatty er álpappír lykillinn að því að halda honum ferskum.

Ferlið er einfalt: Í stað þess að geyma salathausinn í plastpokanum úr búðinni pakkarðu honum lauslega inn í álpappír áður en þú setur hann í ísskápinn. Það er allt og sumt.

Prófaði ráðið í 30 daga

Chef Fatty mælir með því að fjarlægja gulnuð eða skemmd blöð áður en salatinu er pakkað inn. Ef það er óhreint má skola það fyrst, en gæta þarf þess að það sé alveg þurrt áður en því er pakkað. Brjóttu síðan álpappírinn lauslega utan um hausinn og settu hann í grænmetisskúffuna í ísskápnum.

Hugsunin að baki ráðinu snýst um raka. Salat missir stökkleikann þegar blöðin tapa vatni, en of mikill raki getur flýtt fyrir skemmdum. Markmiðið með lausum álpappírsumbúðum er því að draga úr því að blöðin þorni án þess að loka salatið alveg inni.

Lindsay Parrill, matarbloggari hjá Taste of Home, prófaði ráð Chef Fatty og sagði það virka. Hún geymdi einn salathaus í álpappír og annan í plastpokanum úr búðinni í 30 daga. Að þeim tíma liðnum sagði hún salathausinn í álpappírnum vera mun ferskari. Hún hefði aðeins þurft að fjarlægja ystu blöðin og undir þeim hefðu salatblöðin enn verið stökk og hentað vel í salatið, á samlokuna eða borgarann eftir allan þennan tíma.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab