Óttar Guðmundsson skrifar: Heimsendaspámenn
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gaf út bæklinginn Verum viðbúin á dögunum. Almenningur er hvattur til að búa sig undir óljósar ógnir sem sífellt steðja að. Afleiðingarnar eru fjölþættar: Rafmagnið dettur út, hitinn lækkar í húsum, farsímar verða gagnslausir, búðir loka og bílarnir standa staðir eins og gamlir húðarklárar. Fólk á að hafa tiltækar matar- og vatnsbirgðir, reiðufé og batterísútvarp til að geta hlustað á skilaboð frá yfirvöldum. Yfirvofandi hætta er ekki skilgreind en mögulega er um stríðsátök að ræða, eldgos eða jarðhræringar.
Þetta er allt saman fyrir tilstuðlan svokallaðra heimsendaspámanna. Með mikilli fjölgun háskólamanna með dularfullar prófgráður hefur fjölgað í hópi „vísindamanna“ sem vara við yfirvofandi heimsendi. Heimur er nefnilega á helvegi og heimsendafræðingar eru sérlega vinsælir á fjölmiðlum.
Þetta er þó ekkert nýtt. Frægasti spámaður Íslandssögunnar var Jón nokkur Krukkur sem uppi var á 17. öld. Jón var Skaftfellingur og færði í letur Krukksspá sína þar sem miklum náttúruhamförum og hörmungum er lýst. Fólk beið eftir því að þessir spádómar raungerðust og máltækið „kemur að því sem Krukkur spáði,“ á rætur að rekja til ofurtrúar á spádómshæfileika Krukks.
Ég fæddist um miðbik liðinnar aldar. Kalda stríð stórveldanna var í algleymi. Rússar og Bandaríkjamenn skóku kjarnavopn sín hvor framan í annan. Tilraunir með kjarnaorkuvopn með tilheyrandi geislun voru daglegt brauð. Í Kúbu- og Berlínardeilunum var mannkynið einungis nokkrum mínútum frá allsherjarstríði. Kjarnorkuógnin var áþreifanleg og öll skólabörn í Laugarnesskóla reiknuðu með því stikna í kjarnorkubáli. Við þetta bættist gatið í ósonlaginu sem dræpi þá sem lifðu af kjarnorkustríðið. Megas gerir þetta að yrkisefni og talar um „líkindaútreikning kjarnorkustyrjaldahönnuðanna.“
Þegar kaldastríðinu lauk uppúr 1990 tók við loftslagsváin. Heimurinn átti eftir að farast vegna loftslagsbreytinga og losunar gróðurhúsalofttegunda. Jöklar myndu bráðna, yfirborð sjávar hækka. Golfstraumurinn breyta um stefnu. Mannkynið átti eftir að kafna og drukkna. Frá aldamótum höfum við búið við yfirhangandi loftslagsvá sem menn hafa ekki leyst þrátt fyrir óteljandi ráðstefnur með fjölmennum íslenskum sendinefndum. Nú hefur bæst við eldfjalla- og jarðskjálftavá með gosi á Reykjanesskaganum.
Ég hef því allt mitt líf búið við lífshættu. Engan þarf að undra að ég ætla ekki að fara að hamstra grænar ORA-baunir og hrísgrjón og vatn á gamals aldri. Allar þessar heimsendaspár er reyndar að að finna hjá Jóni Krukk svo að ekkert kemur mér lengur á óvart.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗