Þórdís Edwald keypti 225 milljóna höll við fræga götu

Þórdís Edwald hefur fest kaup á húsi á besta stað.

Þórdís Edwald hefur fest kaup á húsi á besta stað. Samsett mynd

Þórdís Edwald, fjárfestir og eiginkona Ármanns Þorvaldssonar forstjóra Kviku sem óskað hefur eftir því að láta af störfum, hefur fest kaup á einstöku húsi við Sunnuveg í Reykjavík.

Húsið er teiknað af Gísla Halldórssyni og reist 1961. Það er 267 fm að stærð og sérlega eigulegt með stórum gluggum og ríkulegum stofum. Sunnuvegur er einstök leynigata í Reykjavík sem er alveg við Laugardalinn og eru einungis hús öðru megin við götuna. Í gegnum tíðina hafa hinir efnameiri kosið að búa við götuna enda eru húsin hvert öðru flottara. 

Þórdís keypti húsið af Jensínu Kristínu Böðvarsdóttur eiganda og framkvæmdastjóra VinnVinn og Þorvaldi Jacobsen framkvæmdastjóra Landsnets. Húsið fór á sölu eftir að þau fóru hvort í sína áttina. 

Smartland fjallaði ítarlega um húsið þegar það var auglýst til sölu 2024. 

Húsið er hannað af Gísla Halldórssyni.

Húsið er hannað af Gísla Halldórssyni. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is

Hrifin af Gísla Halldórssyni 

Þórdís þekkir Laugardaginn vel en hún bjó áður við Dyngjuveg ásamt fjölskyldu sinni en seldi húsið á dögunum á 510.000.000 kr. Húsið hafði verið á sölu í svolítinn tíma. Húsið við Dyngjuveg er líka teiknað af Gísla Halldórssyni líkt og Sunnuvegurinn. Því má áætla að Þórdís sé ferlega hrifin af verkum Gísla Halldórssonar. 

Þórdís greiddi 225.000.000 kr. fyrir húsið. 

 Smartland óskar Þórdísi og fjölskyldu til hamingu með húsið! 

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab