Fjórar gellur í Ultra Formi
Stemmingin í morgun, föstudag, í Ultra Formi, frá vinstri Karlotta, Sigurjón og Simone Vareikaité, eiginkona og meðeigandi Sigurjóns. mbl.is/Karítas
„Við erum hérna fjórar gellur, Sigurjón er farinn heim að sofa, en ég er komin í 107 kílómetra núna,“ segir Karlotta Ósk Óskarsdóttir, tölvunarfræðingur og ein helsta hlaupakona Íslands, sem búin er að spæna í sig allar verðlaunahúfurnar hjá Félagi íslenskra 100 kílómetra hlaupara á örskömmum tíma og var í viðtali hér á mbl.is í vor eftir 742 kílómetra hlaup í búlgörsku höfuðborginni Sofiu.
Nú nú, gamla átakið, hvað á ég þá að skrifa í fyrirsögn, „fór heim að sofa í miðju átaki“?
Karlotta hlær við raust, en fyrir þá lesendur sem ekki vita stendur nú 50 klukkustunda átak í líkamsræktarstöðinni Ultra Formi á Gylfaflöt 10 til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Karlotta og Sigurjón ætla sér að æfa þar eins og skepnur í 50 klukkustundir samfleytt.
„Nei nei, ekki setja það í fyrirsögn, hann var hérna með svakalega frammistöðu í dag, hljóp 42,5 kílómetra, meira en maraþon, tók 250 upphífingar, 500 armbeygjur og endalaus tíu sinnum tíu framstig. Hann var hérna í sex tíma í dag og kemur aftur í fyrramálið,“ segir Karlotta af frammistöðu Sigurjóns Ernis Sturlusonar ofuríþróttamanns.
Karlotta ótrauð á brettinu, komin í 107 kílómetra eftir fyrsta daginn, á um það bil sextán tímum af 50. Ljósmynd/Aðsend
Líka áminning um hreyfingu
Hér má heita á Karlottu og Sigurjón í átakinu Skref fyrir lífið, þau ætla að safna tveimur milljónum hið minnsta fyrir Krabbameinsfélagið og eins og Karlotta sagði í gær snýst átakið öðrum þræði um að vera áminning til fólks almennt, Jóns og Gunnu í Grafarvogi og allra hinna, um að hreyfa sig reglulega, ekki detta bara í sófann eftir vinnu, krabbamein nærist á hreyfingarleysi og aukakílóum
Eins og fram kemur í frétt mbl.is síðan í gær stefnir allt í að Karlotta hlaupi mun lengra en 200 kílómetra, komin í 107 nú þegar eftir rúman hálfan sólarhring af rúmum tveimur.
Þegar þetta viðtal er tekið eru þær fjórar á staðnum, Tanja, hún, Karlotta nafna hennar og Guðrún sem er sama röðin frá vinstri til hægri og á myndinni hér fyrir neðan.
Karlotta er þakklát ýmsum velgjörðaraðilum.
„Saffran hefur sent mér tvær máltíðir þannig að þau eru alveg búin að vera æðisleg og Mjólka er búin að gefa okkur alveg helling af kefír og Happy Hydrate, búin að gefa okkur fullt af söltum og og svo er Coca-Cola búið að gefa okkur alveg helling af vatni og gosi og Powerade. Það er hugsað vel um okkur,“ segir Karlotta og dylur ekki gleði sína.
Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins mætti í morgun og tók nokkra kílómetra á brettinu, mikil hlaupakona að sögn Karlottu, sem kvíðir ekki nóttinni sem í hönd fer, graníthörð á brettinu.
Fylgst verður með söfnunarátaki Karlottu og Sigurjóns, Skref fyrir lífið, hér á mbl.is um helgina og þar til yfir lýkur á sunnudagsmorgun.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


