Endurkoman gengið vel en framtíðin óljós
Guðný Árnadóttir er samningslaus hjá sænska knattspyrnufélaginu Kristianstad og ekki liggur fyrir hvar hún leikur á næsta tímabili.
Henni líður vel hjá félaginu en þarf að hugsa um fjölskylduna þegar hún tekur ákvörðun um framhaldið.
„Planið var mögulega að vera áfram en ég veit ekki hvað gerist. Tímabilið er búið og við þurfum að setjast niður og ræða þetta,“ sagði Guðný í samtali við Morgunblaðið.
Landsliðskonan eignaðist dótturina Hildi Mjöll í apríl og sneri aftur til keppni í september. Hún hafði ekki viljað stressa sig á næstu skrefum á meðan hún var ólétt eða fyrst eftir fæðinguna.
„Ég vissi ekki hvernig ég kæmi til baka eða hvað ég vildi.“
Endurkoman gekk vel og Guðný hefur síðan leikið fimm leiki frá upphafi til enda. Hún sagði nú tímabært að ræða framtíðina.
„Núna líður mér vel og við ætlum að ræða áframhaldandi samning eða hvað við viljum gera. Það fer mjög vel um okkur öll hér en maður verður að hugsa um fjölskylduna, ekki bara sjálfan sig,“ sagði Guðný.
Nánar er rætt við Guðnýju í Morgunblaðinu sem kemur út í fyrramálið.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗