Skilaði 4 milljörðum dala á fyrsta sólarhringnum

Gagnrýnendur hafa keppst um að lofsama leikinn.

Gagnrýnendur hafa keppst um að lofsama leikinn. AFP/Angela Weiss

Útgáfa tölvuleiksins Grand Theft Auto VI er sú stærsta í sögu afþreyingariðnaðarins, að sögn útgefandans, Rockstar Games, og skilaði tæpum fjórum milljörðum dala í smásölu á fyrsta sólarhringnum.

Rockstar, sem er í eigu Take-Two Interactive í New York, sagði að leikurinn hefði selst í 32,5 milljónum eintaka fyrir útgáfu, sem er met á öllum leikjavélum.

„Við erum ótrúlega auðmjúk yfir viðbrögðum spilara um allan heim,“ sagði Sam Houser, stofnandi og forseti leikjaversins.

Leikurinn kom út á fimmtudag fyrir PlayStation 5 og Xbox Series XS. Hann kom fyrst út á miðnætti á Nýja-Sjálandi og síðan á hverjum markaði fyrir sig þegar klukkan sló miðnætti.

Útgáfan gat einnig af sér fleiri færslur á samfélagsmiðlum en heimsmeistaramótið í knattspyrnu í ár, samkvæmt vöktunarvettvanginum Visibrain.

Þá hafa gagnrýnendur lofsamað leikinn, sem hefur fengið einkunnina 99 á samantektarsíðunni Metacritic. Rockstar sagði það gera hann að hæst metna leik allra tíma.

Í vikunni hlaut leikurinn átta tilnefningar til Game Awards-verðlaunanna, sem verða afhent 10. desember.

Rockstar varði meira en átta árum í þróun leiksins. Útgáfunni var frestað tvisvar, fyrst frá haustinu 2025 og síðan frá maí 2026.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab