Bjartsýnn á velgengni Íslands á EM
Anton Rúnarsson, þjálfari kvennaliðs Vals í handknattleik, er bjartsýnn á að íslenska kvennalandsliðið nái góðum árangri á Evrópumótinu í desember.
Anton vann tvöfalt með Val á sínu fyrsta tímabili með liðið og varð bæði Íslands- og bikarmeistari.
EM fer fram í Póllandi, Rúmeníu, Tékklandi, Slóvakíu og Tyrklandi dagana 3. til 20. desember. Leikir íslenska liðsins í riðlakeppninni fara fram í Oradea í Rúmeníu.
„Þetta er gríðarlega spennandi verkefni sem stelpurnar eru að fara í. Þær eru í mjög sterkum riðli og það verður áhugavert að sjá hvernig liðinu reiðir af gegn þessum þjóðum.
Leikmennirnir hafa staðið sig vel, öðlast góða reynslu og tekið þátt í stórmótum undanfarin ár,“ sagði Anton.
Ísland leikur í A-riðli ásamt Slóveníu, Svartfjallalandi og Ungverjalandi.
„Ég er nokkuð bjartsýnn fyrir hönd íslenska liðsins. Það eru klárlega möguleikar til staðar til að gera góða hluti,“ sagði Anton við mbl.is.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗