Tæplega 600 konur myrtar á þremur mánuðum

Jóhannesarborg í Suður-Afríku.

Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Ljósmynd/Colourbox

Alls var 581 kona drepin í Suður-Afríku frá júlí til loka september á þessu ári, samkvæmt nýjustu afbrotatölum lögreglu, sem birtar voru í dag.

Þar af var 131 drepin í Gauteng-héraði, þar sem Jóhannesarborg er.

Í tölunum eru þrettán konur sem fundust látnar í Jóhannesarborg og nágrenni. Lík þeirra voru að hluta nakin og með marbletti og höfðu verið skilin eftir á almannafæri.

Morðin vöktu mikla reiði víða um land og þrýst var á lögreglu að hafa uppi á þeim sem báru ábyrgð. Suður-Afríka er meðal þeirra ríkja heims þar sem tíðni morða og kynbundins ofbeldis er hæst, að því er segir í umfjöllun BBC.

Fyrr í vikunni voru fimm konur og smábarn skotin til bana í Free State-héraði.

Um 60 morð á dag

Lögregla skráði alls 5.590 morð á tímabilinu, 204 færri en á sama tíma í fyrra. Að meðaltali voru framin um 60 morð á dag.

Óljóst er hvort fleiri eða færri konur voru drepnar en á sama tíma í fyrra. Lögregla hafði um skeið hætt að birta tölur um fjölda kvenna sem voru drepnar vegna þess sem hún sagði vera „veruleg frávik“ í gögnunum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab