Erlingur vann feðgaslaginn
Feðgarnir Erlingur Richardsson og Elmar Erlingsson mættust í þýsku B-deildinni í handbolta í kvöld. Lærisveinar Erlings í Minden höfðu betur 36: 27 gegn Nordhorn, liði Elmars.
Þetta var sjöundi deildarsigur Minden í röð undir stjórn Erlings en liðið er nú þremur stigum frá toppsætinu. Liðið er í 6. sæti með 17 stig en fjögur lið eru í 2. til 5. sæti með 18.
Nordhorn er í 8. sæti með 12 stig.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
