Auglýst eftir ökumanni eða vitnum

Lögreglan á Norðurlandi eystra auglýsir eftir ökumanni eða vitnum í máli.

Í færslu lögreglunnar á Facebook er greint frá því að þriðjudagskvöldið 22. september sl. hafi verið ekið á dreng á rafhlaupahjóli á Mýravegi, við Vanabyggð, á Akureyri. Atvikið átti sér stað um kl. 20:30 og er bifreiðin sögð hafa verið grá að lit.

Viðkomandi ökumaður er beðinn um að hafa samband við lögreglu.

Þeir sem hafa upplýsingar um málið, eða urðu vitni af slysinu, eru beðnir um að hafa samband í síma 444-2800 eða senda tölvupóst á netfangið: [email protected]

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab