Neyðarlínan vill nýtt viðvörunarkerfi í farsíma

Neyðarlínan vill að tekin verði upp tækni sem gerir kleift að senda viðvaranir um yfirvofandi eða yfirstandandi hættu nær samstundis í farsíma á afmörkuðu svæði. Ljósmynd/Colourbox

Neyðarlínan vill að tekin verði upp tækni sem gerir kleift að senda viðvaranir um yfirvofandi eða yfirstandandi hættu nær samstundis í farsíma á afmörkuðu svæði.

Nú eru slíkar viðvaranir sendar með SMS-skilaboðum. 

Þetta kemur fram í umsögn Neyðarlínunnar um fjarskiptafrumvarp innviðaráðherra. Umsögnin var birt á vef Alþingis í dag. Tæknin nefnist Cell Broadcast og hefur, að sögn Neyðarlínunnar, verið tekin í notkun á öllum hinum Norðurlöndunum.

Neyðarlínan telur hana skilvirkari og öruggari en SMS-sendingar og segir aðeins í undantekningartilvikum hægt að slökkva á móttöku slíkra viðvarana. 

Kostnaðarskipting verði skýrari

Neyðarlínan hefur um árabil rekið viðvörunarkerfið í samstarfi við fjarskiptafyrirtækin. Í umsögninni segir að óvissa um hver eigi að bera kostnaðinn hafi valdið nokkrum núningi í samstarfinu án þess að trufla sendingu viðvarana.

Í frumvarpinu er lagt til að fjarskiptafyrirtæki sendi viðvaranir um eigið farsímanet án endurgjalds frá þeim viðbragðsaðila sem óskar eftir sendingunni. Þeim verði heimilt að innheimta tiltekinn útlagðan kostnað þegar boðin berast inn á net annars fjarskiptafyrirtækis. Neyðarlínan fagnar því að kostnaðarskiptingin verði skýrð.

Neyðarlínan hefur um árabil rekið viðvörunarkerfið í samstarfi við fjarskiptafyrirtækin. Í umsögninni segir að óvissa um hver eigi að bera kostnaðinn hafi valdið nokkrum núningi í samstarfinu án þess að trufla sendingu viðvarana. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vill að ákvæði um neyðarsamskipti verði sett aftur inn

Neyðarlínan leggur jafnframt til að heimild til að innleiða evrópskar reglur um neyðarsamskipti við 112 verði sett aftur inn í frumvarpið. Innleiðingin myndi meðal annars gera fólki kleift að hafa samband við 112 með texta í rauntíma og myndsímtölum og senda nákvæmar upplýsingar um staðsetningu neyðaratviks. 

Samkvæmt umsögninni var ákvæðið fellt brott vegna óvissu um ábyrgð, kostnaðarmat og fjármögnun. Neyðarlínan telur að innleiðingin muni taka mörg ár og hvetur Alþingi til að lögfesta heimildina svo undirbúningur geti hafist sem fyrst.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab