Frábært stig hjá Ísaki og félögum

Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar náðu í gott stig í kvöld. Ljósmynd/Alex Nicodim

Köln gerði 1:1 jafntefli við Þýskalandsmeistara Bayern München á útivelli í þýsku 1. deildinni í fótbolta í kvöld. 

Bayern missti af mikilvægum stigum í toppbaráttunni en Borussia Dortmund getur hrifsað toppsætið takist liðinu að vinna Borussia Mönchengladbach á útivelli á morgun. 

Köln er í 14. sæti með tíu stig, þremur stigum frá fallsæti.

Englendingurinn Mikey Moore kom gestunum yfir eftir tólf mínútna leik en Nathaniel Brown jafnaði á 37. mínútu.

Landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson kom inn á sem varamaður þegar þrettán mínútur voru til leiksloka. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab