Þorgerður fordæmir banatilræði í Danmörku

Þorgerður Katrín utanríkisráðherra.

Þorgerður Katrín utanríkisráðherra. mbl.is/Karítas

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segir fréttir af banatilræði í Danmörku í september sem skipulagt var af rússneskum yfirvöldum óhugnanlegar.

Danska lögreglan greindi í dag frá því að hún hafi afstýrt tilraun rússnesku leyniþjónustunnar ⁠til að myrða bandarísk-úkraínska rapparann Kyivstoner í september, fyrir fyrirhugaða tónleika hans í Danmörku.

Lögreglan ⁠kom í veg fyrir meint ⁠samsærið þegar ​hún handtók þrjá menn með tengsl við danska undirheima skömmu áður en Kyivstoner, sem heitir réttu nafni Albert Viktorovich Vasiliev, átti að koma fram á ⁠tónleikum 25. september, sem síðan var aflýst, að sögn yfirvalda. Vasiliev er með bandarískt og úkraínskt ríkisfang.

Hafa neitað sök fyrir dómi

Rasmus Kieffer-Kristensen, yfirmaður dönsku öryggis- og leyniþjónustunnar, sagði: „Það er skýrt mat okkar að banatilræðið hafi verið skipulagt af rússnesku ⁠leyniþjónustunni.“

Samkvæmt saksóknurum voru hinir grunuðu á leið að tónleikastaðnum norður af Kaupmannahöfn með tvær hlaðnar skammbyssur og tvo hnífa þegar lögreglan handtók þá um klukkan 21.55, fimm mínútum áður en tónleikarnir áttu ‌að hefjast. Fjórði sakborningurinn í málinu var handtekinn síðar um kvöldið, að sögn lögreglu.

Einn hinna grunuðu hafði keypt miða á tónleikana, samkvæmt ​ákærunni.

Hinir grunuðu eru ákærðir samkvæmt 108. grein dönsku hegningarlaganna, sem tekur til aðstoðar við erlenda leyniþjónustu, auk tilraunar til manndráps. Þeir neituðu sök fyrir dómi, að því er ríkisútvarpið DR greindi frá.

Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur.

Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur. AFP

Kölluðu sendiherrann á fund

Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Danmerkur sagði á blaðamannafundi síðdegis í dag þar sem hann greindi frá því að rússneska varnarmálafulltrúanum í Danmörku verði vísað úr landi.

„Við höfum rétt í þessu kallað rússneska sendiherrann á fund í utanríkisráðuneytinu og tilkynnt honum um ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að vísa rússneska varnarmálafulltrúanum úr landi í Danmörku,“ sagði Rasmussen og bætti við að brottvísunin muni eiga sér stað innan sjö daga.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfssystir hans, hefur þá tjáð sig um málið á samfélagsmiðlinum X en í færslu hennar segir:

„Óhugnanlegar fregnir berast frá Danmörku af banatilræði sem skipulagt var af Kreml. Við fordæmum ósvífnar tilraunir Rússlands til að bera ofbeldi inn á yfirráðasvæði bandalagsríkja – ekkert mun veikja samstöðu okkar, grafa undan einbeitni okkar eða draga úr skuldbindingu okkar við að styðja Úkraínu.“

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab