Lögreglumönnum brá í brún þegar þeir opnuðu myndamöppu kennslukonunnar - „What the Fuck!!“
Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 20. nóvember 2026 22:30
Lögreglumönnunum var brugðið eftir að hafa séð myndefnið.
Lögreglumaður öskraði af hryllingi þegar hann fann myndband af kennara misnota hund. Kennarinn sagði atvikið hafa verið hluta af „kynferðislegum hlutverkaleik“ hennar og kærasta hennar.
Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.
Hillary Danielle Williams, 34 ára kennari frá bænum Wells í Texasfylki, var handtekin ásamt unnusta sínum Michael Scott McCary í febrúar árið 2025 eftir að skuggalegt myndefni fannst í símanum hennar. Myndefnið sýndi bæði misnotkun á barni og dýri.
Hryllingur í símanum
Málið byrjaði sem heimilisofbeldismál. Lögreglumenn voru kvaddir á heimili fjölskyldunnar og Hillary sagði þeim að Michael hefði verið nota ljósmyndi og myndbönd á símanum gegn sér. En þegar lögreglumennirnir skoðuðu síma þeirra beggja brá þeim í brún eins og myndefni úr búkmyndavélum þeirra sýnir.
„What the Fuck!“ [Hver fjárinn!] mátti heyra einn lögreglumanninn öskra þegar hann fann myndband í síma Hillary sem sýndi rakka sleikja á henni kynfærin. Þá fundu lögreglumennirnir einnig barnaklám í símanum hennar.
Voru þau bæði handtekin og yfirheyrð eftir þetta. Í yfirheyrslu sagði Hillary að misnotkun hennar á hundinum hefði verið hluti af kynferðislegum hlutverkaleik parsins. Michael hefði beðið hana að senda kynferðislegt efni af sér og hún gert þetta til þess að gleðja hann. Sagðist hún ekki haf notið þess að láta hundinn sleikja sig heldur fundist það ógeðslegt.
Fleiri sjúk brot
En sjúkum kynferðisbrotum kennarans var ekki þar með lokið. Eftir að hafa verið sleppt á tryggingu var hún aftur handtekin í júní sama ár. Það er eftir að barn hafði greint frá því að hún hefði beitt sig kynferðislegu ofbeldi.
Í febrúar á þessu ári játaði Hillary öll sín brot. Hún var í kjölfarið dæmd í samanlagt 42 ára fangelsi fyrir misnotkun á barni, vörslu barnakláms og dýraníði. Mihcael var dæmdur fyrir vörslu barnakláms.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗