Svarar orðrómi um breytt útlit: „Ég varð þrítug“

Breska leikkonan Florence Pugh á hátíð tímaritsins ELLE í Beverly Hills á dögunum. Hún segist aldrei hafa tekið Ozempic eða gengist undir fegrunaraðgerð á andliti. AFP/Valerie Macon

Breska leikkonan Florence Pugh segist aldrei hafa tekið Ozempic eða gengist undir fegrunaraðgerð á andliti.

Í færslu sem hún birti á Instagram í gær lýsti hún því hvernig henni hefði liðið að vakna við að þúsundir manna ræddu um andlit hennar og líkama á netinu.

Tilefnið var myndskeið sem Evie Magazine birti á Instagram sem sjá má hér neðar í greininni. Þar var mynd af Pugh á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 2024 borin saman við mynd sem tekin var á Governors Awards um helgina. Í myndskeiðinu var meðal annars velt vöngum yfir því hvort leikkonan hefði gengist undir aðgerð þar sem kjálkalínan virtist skarpari en áður.

„Ég varð þrítug. Ég er kona. Líkamar og andlit breytast,“ skrifaði Pugh í athugasemd við myndskeiðið.

Setti sér það markmið að ná einni upphífingu

Í færslunni sagði Pugh að sér hefði liðið illa andlega þegar sumar eldri myndanna voru teknar og að hún hefði þá farið illa með sig. Þegar myndin var tekin á sunnudag hafi hún hins vegar verið ánægð og hugsað vel um sig.

Áramótaheit hennar hafi verið að breyta áfengisvenjum sínum og ná einni upphífingu. Í fyrsta sinn á ferlinum hafi hún haft svigrúm til að hvílast, borða reglulega og stunda líkamsrækt. Hún hafi lést um tæpt kíló en markmiðið með æfingunum hafi verið að byggja upp vöðva. Nú geti hún tekið sex upphífingar og lyft 110 kílóum.

„Mörgum ykkar finnst það örugglega lítið en fyrir mig skiptir það öllu máli,“ skrifaði hún.

Pugh sagðist árum saman hafa fengið skilaboð um að hún væri of feit, ætti að fara út að hlaupa eða byrja á Ozempic.

Eftir að hún lék glímukonuna Saraya hefði kvikmyndagagnrýnandi jafnvel séð ástæðu til að fjalla um stærð læranna á henni.

Hún hvatti fólk til að sýna sjálfu sér og öðrum meiri nærgætni og velta því fyrir sér hvað það fengi út úr því að gera athugasemdir við útlit annarra.

Daily Mail

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab