Myndir: Gott mál í Hagaskóla

Þessar tvær vinkonur voru í góðum gír á góðgerðardeginum Gott mál í Hagaskóla. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Það var líf og fjör í Hagaskóla í gær þegar góðgerðardagurinn Gott mál var haldinn í fimmtánda sinn. Fjöldi gesta lagði leið sína í skólann og að sögn Reykjavíkurborgar var fullt út úr dyrum.

Nemendur og starfsfólk höfðu unnið að undirbúningi dagsins í nokkrar vikur og greinilegt að nemendur höfðu ekki verið uppiskroppa með hugmyndir.

Skólastofunum hafði meðal annars verið breytt í snyrtistofur, leikjasali og kaffihús. Þá var boðið upp á tívolí og í einni stofunni var meira að segja Grinch-pítsustaður.

Ýmislegt góðgæti var á boðstólnum á fjölbreyttum veitingastöðum.

Ýmislegt góðgæti var á boðstólnum á fjölbreyttum veitingastöðum. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Spákonur og jólakaffihús

Gestir gátu einnig látið spá fyrir sér, fengið neglurnar lakkaðar, skreytt piparkökur eða gert góð kaup á loppumörkuðum. Þá var hægt að spreyta sig í ýmsum leikjum og víða um skólann var eitthvað skemmtilegt um að vera.

Elstu nemendurnir buðu meðal annars upp á franskt kaffihús, jólakaffihús, taco-veitingastað og bandarískan veitingastað. Sumar skólastofurnar höfðu líka fengið sérstakt þema, meðal annars í anda Minecraft, Miami og New York.

Það var fullt út úr dyrum í Hagaskóla þegar gestir fjölmenntu á góðgerðardaginn Gott mál. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Allur ágóði dagsins rennur til Krabbameinsfélagsins og barna og ungmenna í Suður-Súdan. Enn liggur ekki fyrir hversu mikið fé safnaðist, en greint verður frá því síðar.

Tilgangurinn með deginum er þó ekki aðeins að safna fé heldur einnig að kynna nemendum góðgerðarstarf og sýna þeim hvernig þeir geta lagt sitt af mörkum til samfélagsins.

Skólastofunum hafði meðal annars verið breytt í snyrtistofur þar sem gestir gátu látið dekra við sig. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Úr nógu var að velja þegar gestir gátu fengið neglurnar lakkaðar á góðgerðardeginum. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Ýmsir leikir voru í boði og greinilegt að nemendur höfðu lagt metnað í undirbúninginn. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Jólaleg stemning var víða í skólanum.

Jólaleg stemning var víða í skólanum. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Nemendur buðu gestum upp á fjölbreytta afþreyingu og þjónustu, meðal annars piparkökuskreytingar. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Ýmislegt spennandi leyndist á loppumarkaðnum þar sem gestir gátu gert góð kaup. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Jólasveinninn lét sig ekki vanta og tók þátt í gleðinni.

Jólasveinninn lét sig ekki vanta og tók þátt í gleðinni. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Það var að sjálfsögðu líka pláss fyrir íþróttir á góðgerðardeginum.

Það var að sjálfsögðu líka pláss fyrir íþróttir á góðgerðardeginum. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab