Yfir 100 milljónir rauðra krabba á leið til sjávar
Erlent | AFP | 20.11.2026 | 22:00
Auglýsingin endar eftir 5 sekúndur.
Yfir 100 milljónir rauðra krabba á áströlsku Jólaeyju hafa lagt af stað í árlega göngu sína úr skógum eyjarinnar niður að ströndinni.
Gangan hefst við upphaf regntímans þegar krabbarnir leita til sjávar til að fjölga sér. Náttúruverndarfólk á eyjunni ver mánuðum í undirbúning göngunnar.
Jólaeyja er afskekkt ástralskt landsvæði í Indlandshafi, um 350 kílómetrum sunnan við Indónesíu og í meira en þúsund kílómetra fjarlægð frá meginlandi Ástralíu.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗