Mourinho kunni illa við spurningarnar og lauk blaðamannafundinum
Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, batt enda á blaðamannafund í dag vegna spurninga um Cristiano Ronaldo og JJ Gabriel.
Mourinho var fyrst spurður út í Gabriel, 16 ára gamlan leikmann sem er á leið frá Manchester United til Real Madrid. Hann vildi lítið tjá sig um leikmanninn.
„Ég hef tengsl við mína leikmenn, þá sem ég vinn með á hverjum degi. Ekki leikmenn sem ég vinn ekki með,“ sagði Mourinho.
Þá var hann spurður út í umdeilt brotthvarf Ronaldo frá portúgalska landsliðinu, en Mourinho hafði engan áhuga á að ræða málið.
„Nei, nei, nei, nei. Sem Portúgali vil ég bara að Portúgal haldi áfram að vinna. Að öðru leyti þvæ ég hendur mínar af þessu. Takk fyrir,“ sagði Mourinho og lauk blaðamannafundinum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗