Lifði af mannrán og hrottalegt margra mánaða ofbeldi - Segir algenga hegðun kvenna geta stofnað þeim í hættu

Elizabeth Smart var 14 ára gömul þegar henni var rænt, og hótað með hnífi ef hún hlýddi ekki, úr svefnherbergi sínu í Salt Lake City í Utah. Hún var síðan haldið fanginni og hún beitt kynferðisofbeldi af götupredikara og eiginkonu hans.

Í bókinni My Story, sem kom út árið 2013, lýsir Smart níu mánuðum í hrottalegri vist hjá hjónunum. 

Hún lýsti því hvernig hún var svo skelfingu lostin gagnvart fólkinu sem rændi henni, að þegar lögreglan bjargaði henni í úthverfi Salt Lake City í mars 2003, var hún treg til að gefa upp nafn sitt. 

Í hlaðvarpi sínu, The Survivor Files with Elizabeth Smart, sem hún byrjaði nýlega með, ræðir Smart við aðra sem hafa lifað af svipuð atvik. Þau ræða bæði um þær skelfingar sem þau gengu í gegnum og hvernig þeim hefur tekist að ná bata í kjölfarið.

Smart veltir fyrir sér eigin reynslu og segir að sú útbreidda venja að sýna kurteisi geti komið konum í hættu.

„Ég var alin upp við að vera kurteis, sýna virðingu og vera tillitssöm... Ég myndi segja að sú hugmynd, að það væri mikilvægara að vera ljúf en að hlusta á innsæið, hafi verið röng,“ sagði Smart í samtali við tímaritið People.

Hún segist hafa lagt áherslu á að kenna dætrum sínum, og ungum konum hvarvetna, hvernig þær geti greint hættu og brugðist við henni með því að treysta innsæi sínu.

„Settu eigið öryggi ofar tilfinningum annarra,“ lagði hún áherslu á. „Það er til orðatiltæki: maður sér aldrei gasellu fara inn í lyftu með ljóni. En konur eiga það til að kæfa innsæi sitt. Jafnvel þótt einhver virki grunsamlegur, eða veki með manni óþægindi, hugsum við: ‚Æ, ég vil nú ekki móðga viðkomandi.‘“

Hún sagði að það að treysta eigin innsæi ætti alltaf að ganga framar þægindum annarra.

„Ég vona svo sannarlega að dætur mínar, ef þær finna á sér að eitthvað sé ekki eins og það á að vera, segi einfaldlega: ‚Nei, ég bíð eftir næstu lyftu.‘“

Smart er orðin 38 ára, gift og þriggja barna móðir. Mynd: Instagram.

Á árunum eftir mannránið hefur Smart látið sig öryggi barna varða. Hún stofnaði Smart Defense, verkefni sem kennir konum sjálfsvörn, og nýlega vakti hún athygli á því hvernig lyftingar geta stuðlað að bata, en í apríl sigraði hún í líkamsræktarkeppni.

Smart hefur fundið fyrir miklum stuðningi frá hundruðum þúsunda fylgjenda sinna, þar á meðal mörgum öðrum sem hafa gengið í gegnum svipaða reynslu og hún. Þeir líta á Smart sem fyrirmynd og dást að „hugrekki hennar, ákveðni og vinnusemi.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab