Skrifa ekki til að vera skemmtilegur
Fyrir tveimur árum lofuðu gagnrýnendur skáldævisögu Braga Ólafssonar fyrir það hve hún frábærlega skemmtileg. Ný bók hans, Innanríkið – Aðfangadagar fær svipaðar viðtökur, en Bragi segist ekki skrifa til að vera skemmtilegur
„Mér finnst gaman að stríða lesandanum á þann hátt að hann verður að meta hvað er rétt og hvað er logið. En þráðurinn er alltaf ég, af því ég er sjálfur mjög áhugasamur um að lesa um aðra höfunda eða listamenn eða bara annað fólk. Það er það sem drífur mig áfram. Ég veit að þetta er stundum svolítið sjálfhverft, að ég sé að velta mér upp úr sjálfum mér, en ég ímynda mér, bara eins og ég upplifði það sjálfur, að mögulega hafi annað fólk gaman af að kíkja inn í eitthvert líf í 101 Reykjavík. Ég tel mig hafa alveg svona nægt efni í einhverjar bækur í viðbót. Ég var að vísu búinn að lofa níu bindum af þessari seríu, en nú horfi ég fram á allavegana fjórar.“
Eins og ég sagði, þetta eru fyndnar og skemmtilegar bækur, en þér er samt alvara.
„Já, mér er alltaf alvara. Ég legg aldrei upp með að skrifa fyndinn texta. Það náttúrulega bara, svo ég vitni í texta hljómsveitar sem mér er kunn, það bara kemur alltaf út þannig. Eða ekki alltaf kannski, þetta er ekkert allt eitthvað fyndið.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗