Keflvíkingar jöfnuðu Stólana að stigum

Bragi Guðmundsson skoraði 19 stig í sigri Keflavíkur í kvöld.

Bragi Guðmundsson skoraði 19 stig í sigri Keflavíkur í kvöld. mbl.is/Karítas

Keflavík vann góðan sigur á Tindastóli 92:79 í úrvalsdeild karla í körfubolta í Keflavík í kvöld. Keflavík er nú með tíu stig eftir sjö leiki líkt og Tindastóll og Valur.

KR er á toppi deildarinnar með 14 stig, fullt hús stiga.

Keflvíkingar voru átta stigum yfir 26:18 eftir fyrsta leikhluta og leiddu með tólf stigum í hálfleik 48:36. 

Stólarnir komu muninum niður í fimm stig 69:64 í upphafi fjórða leikhluta en komust ekki nær og Keflavík landaði að lokum þrettán stiga sigri.

Stigaskorið dreifðist vel hjá heimamönnum. Jamir Chaplin var stigahæstur með 23 stig. Jaka Brodnik og Bragi Guðmundsson skoruðu 19 og Hilmar Pétursson 15.

Taiwo Badmus átti flottan leik fyrir Tindastól. Hann skoraði 30 stig og tók níu fráköst. Nemanja Durisic og Dee Bost komu næstir með 15 stig.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab