Íslandsmeistararnir semja við ungan markvörð
Íslandsmeistarar Víkings í Bestu deild karla í fótbolta hafa samið við markmanninn Ólaf Örn Ásgeirsson, sem kemur til félagsins frá HK. Ólafur verður lánaður aftur til HK út tímabilið 2027 en kemur svo í Víkina og keppir um stöðu aðalmarkmanns liðsins.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net greiða Íslandsmeistararnir sjö milljónir króna fyrir Ólaf og getur sú upphæð hækkað út frá árangurstengdum greiðslum.
Ólafur Örn er 23 ára gamall, fæddur árið 2003, uppalinn HK-ingur sem hefur leikið 58 leiki með meistaraflokki HK.
Ólafur skrifaði undir samning sem gildir út árið 2030. Ólafur verður áfram í Kópavogi á láni út tímabilið 2027, þar sem hann fær reglulegan spilatíma. Að því loknu kemur hann til Víkings og keppir um stöðu aðalmarkmanns.
„Ólafur er einn efnilegasti markmaður landsins og hefur mikið af þeim eiginleikum sem við leitum að. Stærðin segir sína sögu en hann er mjög sterkur á milli stangana og mjög góður í föstum leikatriðum og að sækja fyrirgjafir.
Við teljum best fyrir hann að spila reglulega hjá HK eitt tímabil í viðbót. Svo kemur hann til okkar til þess að vinna sér inn stöðuna. Við viljum harða samkeppni um markmannsstöðuna og Ólafur fær alvöru tækifæri til að verða aðalmarkmaður Víkings,“ er haft eftir Kára Árnasyni yfirmanni knattspyrnumála í tilkynningu Víkings.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/41/1694175.jpg)