Faðir Markle ruglaði henni saman við systur sína og hennar í hæfismati geðlæknis
Faðir Meghan Markle, Thomas Markle eldri, ruglaði henni saman við „systur“ sína þegar hann ræddi „fjölskyldudeilur“ við geðlækni. Um var að ræða mat á því hvort hann væri hæfur til að svara til saka vegna ákæru um vörslu barnakláms.
Markle, sem er 82 ára og hefur verið greindur með heilabilun, var spurður út í „áfall“ í viðtali sem framkvæmt var á vegum University of South Florida Health á mánudag, samkvæmt dómstólaskipun og skjölum sem Page Six greinir frá.
Thomas eldri sagði geðlækninum að hann hefði átt í „ýmis konar fjölskyldudeilum og þess háttar; hann hefði ekki náð saman við einhvern í fjölskyldunni, af ýmsum ástæðum.“
Thomas eldri greindi frá því að hann ætti son, Thomas Markle yngri, og dóttur að nafni Meghan Markle, og benti matsaðilanum á að hann hefði „kannski heyrt um Meghan“.
„Ég spurði út í aðra dóttur þar sem ég vissi að hann hafði dvalið á heimili Samantha Markle fyrr í þeirri viku,“ sagði geðlæknirinn, en þar átti hann við dótturina Samantha, sem Thomas eldri á með fyrri eiginkonu sinni, Roslyn Loveless, ásamt syninum Thomas yngri.
„Hann svaraði mér: ‚Ég held ekki. Ég á tvö börn. Ég held að Meghan sé Samantha. Ég á bara eina dóttur og einn son.‘“ Thomas eldri á Meghan með seinni eiginkonu sinni, Doriu Ragland.
Þar að auki tjáði Thomas eldri geðlækninum að hann væri „í meðferð hjá meðferðaraðila en vissi ekki hvað viðkomandi héti,“ og bætti við að systir hans Meghan gæti veitt upplýsingar um það.
„Síðan baðst hann afsökunar, viðurkenndi að hann ætti enga systur og minnti mig á að Meghan Markle væri dóttir hans,“ skrifaði geðlæknirinn. Hann tók fram að maðurinn leitaði til meðferðaraðila vegna gleymsku, tæki lyf og hefði greinst með minnistap.
„Hann greindi ekki frá öðrum geðgreiningum,“ segir í skýrslunni. „Hann kvaðst ekki hafa sögu um innlagnir á geðdeild, hugsanir um sjálfsvíg, sjálfskaða eða tilraunir til sjálfsvígs.“
Feðginin Markle og Thomas.
Thomas eldri sagði geðlækninum frá „taugaveikluðum maga“ sínum og kvaðst hafa glímt við „heilsufarsvandamál í meira en tíu ár,“ þar á meðal tvö heilablóðföll og nýrnasteina.
„Hann greindi frá því að hann hefði verið greindur með forsykursýki,“ skráði geðlæknirinn. „Hann sagði mér að dætur hans, Meghan eða Samantha, gætu sagt mér nákvæmlega hvenær þetta átti sér stað.“ „Þú verður að fyrirgefa mér. Minnið er farið,“ hélt hann áfram.
Thomas eldri minntist á hvernig Thomas yngri kom honum í hendur yfirvalda, eftir að sá síðarnefndi mun hafa fundið hjá honum efni sem sýnir kynferðisbrot gegn börnum.
„Mér finnst sonur minn vera að krossfesta mig um þessar mundir,“ sagði hann. „Ég stríði honum alltaf á því að hann hafi aldrei klárað meira en áttunda bekk í skóla. Hann hefur engu áorkað. Hann hætti í áttunda bekk.“
Thomas eldri hélt því fram að það hefði verið „heimskulegt“ af Thomas yngri að fara ekki aftur í skóla, og sagði að hann hefði lent í fíkniefnum, en sjálfur hefði hann „gert mikið grín að honum út af því.“
Thomas eldri var úrskurðaður hæfur til að sæta réttarhaldi eftir að hann var handtekinn þann 6. nóvember fyrir vörslu á barnaklámi.
Samkvæmt ákæruskjali handtóku alríkislögreglumenn (FBI) Thomas eldri á hjúkrunarheimili fyrir fólk með heilabilun í Flórída, eftir að hafa leitað í geymslurýmum hans í Kaliforníu. Hann á einnig yfir höfði sér ákærur vegna misnotkunar á börnum á Filippseyjum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗