Hrun á mörkuðum vestanhafs
Hlutabréfamiðlari setur upp óræðan svip í Kauphöllinni í New York í dag á meðan skjáirnir í baksýn segja stærstan hluta sögunnar. Markaðir lokuðu eldrauðir í dag með gervigreindarfyrirtæki og örgjörvaframleiðendur nánast í frjálsu falli nú þegar almenningur um allan heim er farinn að spyrja sig áleitinni spurninga um hvort gervigreindin sé raunverulega framtíð mannkyns. AFP/Michael M. Santiago
Eldrauð lokun var á hlutabréfamörkuðum vestanhafs í dag við lok hrikalegrar viku á mörkuðum sem einkenndist af því að mikið auglýst frumútboð gervigreindarfyrirtækisins Anthropic leiddi til þess að fjárfestar innleystu hagnað af hækkunum bréfa gervigreindarfyrirtækja í stað þess að útboðið blési í þau lífi.
Leiddi þetta til þess að Nasdaq Composite-vísitalan fór í mínus fyrir árið í heild og S&P 500 fór inn á svokallað leiðréttingarsvæði (e. correction territory) ásamt Dow Jones-iðnaðarvísitölunni.
Nasdaq-vísitalan fyrir hátæknifyrirtæki lækkaði um 4,7 prósent og hefur þar með lækkað um 2,1 prósent frá áramótum. S&P 500 og Dow Jones eru nú hvorar tveggja komnar tíu prósent niður fyrir hæstu lokagildi sín.
Hækkun Anthropic þurrkaðist út að hluta
Anthropic tapaði tíu prósentum í dag og missti þar með lungann úr þeirri sautján prósenta hækkun sem varð við frumraun félagsins á Nasdaq í gær sem setti þrýsting á gervigreindargeirann í heild sinni.
Örgjörvaframleiðendurnir Advanced Micro Devices (AMD) og Nvidia féllu um tólf og rúm ellefu prósent og jókst söluþrýstingur á Nvidia eftir að Reuters-fréttastofan greindi frá því að bandaríska fjármálaeftirlitið rannsakaði bókhald fyrirtækisins. Micron Technology féll um rúm þrettán prósent.
Lækkanirnar í tæknigeiranum bættust svo ofan á tapið í óhrjálegum viðskiptum fimmtudagsins þar sem helstu vísitölur töpuðu hver um sig meira en tveimur prósentum og Dow Jones lokaði undir hinu gullvæga 50.000 stiga marki í fyrsta sinn síðan í júní.
Klárlega áhættufælni
„Þetta er ekki bara leiðrétting knúin áfram af verðmati. Þetta er á breiðari grundvelli,“ segir Massimo Santicchia, yfirmaður bandarískra hlutabréfa hjá Procyon. „Eins og staðan er núna ríkir klárlega áhættufælni [e. risk-off],“ segir hann enn fremur.
Lækkanirnar vekja ugg meðal fjárfesta sem höfðu vonast til þess að uppgjör Nvidia og frumútboð Anthropic glæddu áhugann á gervigreindarbréfum. Nú virðist markaðurinn hins vegar vera á barmi fullkominnar uppgjafar (e. capitulation) eftir að hafa sætt neikvæðri umfjöllun fjölmiðla vikum saman.
Svo virðist sem Bandaríkjamenn – og fleiri – spyrji sig nú áleitinna spurninga um framtíð örrar uppbyggingar og þróunar gervigreindartækni og draga nýlegir atburðir þar ekki úr, svo sem stórsigur Demókrataflokksins í nýafstöðnum þingkosningum og brottvikning Jensens Huang Nvidia-forstjóra. Í ofanálag skelfa líkur á frekari vaxtahækkunum frá bandaríska seðlabankanum miðlara.
Uppbygging gagnavera hægir á sér
Viðbrögð vikunnar hafa meðal annars verið þau að fjárfestar hafa leitað skjóls í varnarsinnuðum markaðsgeirum og sáu smásöluverslanir á borð við Walmart og Costco auk fyrirtækjanna Johnson & Johnson og Procter & Gamble hækkanir, Walmart um tvö prósent, Costco, Johnson & Johnson og Procter & Gamble um rúmt prósentustig hvert.
„Hlutabréfamarkaðurinn er að ganga í gegnum endurverðlagningu gervigreindar sem endurspeglar umhverfi þar sem hægir á uppbyggingu gagnavera, fjármögnunarleiðum fyrir gervigreindarverkefni fækkar og hægari vöxtur er í hagnaði tæknifyrirtækja,“ segir Richard Saperstein, fjárfestingastjóri Treasury Partners.
Þessa vikuna hefur Dow Jones fallið um sjö prósent og stefnir þar með í sína verstu frammistöðu innan einnar og sömu vikunnar síðan í apríl í fyrra. S&P 500 hefur lækkað um tæp átta prósent á meðan Nasdaq hefur lækkað um níu prósent og stefna báðar vísitölurnar einnig í mestu vikulækkun síðan í fyrra.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗