Matthías snýr aftur í Gróttu

Matthías Guðmundsson er snúinn aftur til Gróttu og mun hann þjálfa liðið í Bestu deild kvenna á næstu leiktíð.

Matthías þjálfaði Gróttu í Lengjudeildinni 2024 og gerði vel. Hann var látinn fara úr starfi þjálfara Vals eftir fall liðsins úr Bestu deildinni í Haust.

Tilkynning Gróttu:

Matthías Guðmundsson hefur gert tveggja ára samning við knattspyrnudeild Gróttu og mun stýra meistaraflokki kvenna ásamt Dominic Ankers en þeir verða báðir aðalþjálfarar liðsins. Matthías, betur þekktur sem Matti, er mörgum kunnugur í Gróttu en hann stýrði liðinu tímabilið 2024. 

Arnar Axelsson, yfirmaður knattspyrnumála, fagnar endurkomu Matta:

,,Það er okkur gríðarlegt ánægjuefni að fá Matta aftur til starfa hjá félaginu. Ráðningin endurspeglar metnað félagsins til að byggja upp sterkt og faglegt umhverfi fyrir leikmenn.

Matti þekkir félagið vel og býr jafnframt yfir dýrmætri reynslu úr efstu deild, bæði sem þjálfari og leikmaður. Sú reynsla mun nýtast liðinu vel á sínu fyrsta tímabili í Bestu deild kvenna.’’

Matti er spenntur fyrir komandi tímum í Gróttu og hlakkar til samstarfsins með Dom. Spennandi tímar eru framundan í kvennaknattspyrnu hér á Seltjarnarnesi  

Á mynd með Matta eru Stefán Bjarnason, formaður meistarflokks kvenna ráðs og Arnar Axelsson, yfirmaður knattspyrnumála.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab