Fyrsti sigur Hornfirðinga

Sindri vann fyrsta leik sinn í kvöld.

Sindri vann fyrsta leik sinn í kvöld. Ljósmynd/Gunnar Stígur Reynisson

Sindri vann fyrsta leik sinn í úrvalsdeild karla í körfubolta þegar liðið sigraði Njarðvík 107:101 á Hornafirði í kvöld. 

Sindri er nú með 2 stig líkt og Njarðvík og ÍR en Ármann er neðst án stiga.

Njarðvík var með þriggja stiga forskot, 25:22, eftir fyrsta leikhluta en heimamenn voru sterkari í öðrum leikhluta og leiddu með átta stigum, 58:50, í hálfleik.

Heimamenn lögðu grunninn að sigrinum með frábærum þriðja leikhluta þar sem þeir skoruðu tíu stigum meira en gestirnir og voru því átján stigum yfir.

Njarðvíkingum tókst að minnka muninn en bilið var of breitt og nýliðarnir fögnuðu fyrsta sigri sínum í efstu deild en liðið leikur nú í fyrsta skipti í úrvalsdeildinni.

Kaleb Higgins var stigahæstur heimamanna með 34 stig, en auk þess gaf hann 10 stoðsendingar og tók 8 fráköst. 

Branislav Vujadinovic var einnig drjúgur með 22 stig og Lazar Grbovic skoraði 16.

Njarðvíkingurinn Makye Richard var stigahæsti maður vallarins með 36 stig en næstir komu Spencer Svejcar með 19 stig og David Okeke með 18. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab