Vill að forstjórinn fái annað tækifæri

Jensen Huang og Donald Trump.

Jensen Huang og Donald Trump. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti hvatti í dag stjórn Nvidia til að ráða aftur Jensen Huang, fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins sem féll í ónáð eftir að hann sagði af sér vegna framhjáhalds, meðal annars með meintum kínverskum njósnara.

„Ég myndi gjarnan vilja sjá hann snúa aftur. Hann er sannarlega einn af snjöllustu hugsuðum heims, og hvert á hann að fara?“ sagði Trump við fréttamenn í dag.

„Ég held að ég myndi gjarnan vilja sjá Jensen fá annað tækifæri.“

Góður maður að mati Trumps

Huang sagði af sér í síðustu viku sem forstjóri Nvidia, fyrirtækis sem er í miðpunkti gervigreindarbyltingarinnar, eftir að upp komst um ástarsamband hans við meintan kínverskan njósnara.

Fréttir af að minnsta kosti tveimur öðrum framhjáhöldum bárust í kjölfar fyrstu fréttarinnar.

Trump varði Huang og sagði hann „góðan mann“ sem hefði „tekið nokkrar slæmar ákvarðanir“.

„Ég vil sjá Jensen biðjast innilega afsökunar og snúa aftur því hann skapaði eitthvað með Blackwell,“ sagði hann og vísaði þar til fullkomnustu örflaganna sem Nvidia hefur hannað.

Ræddi Huang við forseta Kína

Forsetinn virtist einnig ganga beint gegn orðum eigin fjármálaráðherra þegar hann sagðist hafa rætt um Huang við Xi Jinping, forseta Kína, á leiðtogafundi fyrr í vikunni.

„Ég ræddi það við Xi forseta og hann sagði: ‚Ó, snjall, snjall! Hann er snjall maður,‘“ sagði Trump.

Fyrr um daginn hafði Scott Bessent fjármálaráðherra sagt að Trump hefði ekki rætt um Huang við Xi á fundinum í Shenzhen.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab