Eignaðist fyrsta barnið 55 ára

Leikarahjónin Jon Hamm og Anna Osceola eru búin að eignast barn. AFP/Michael TRAN

Mad Man-leikarinn Jon Hamm eignaðist sitt fyrsta barn með eiginkonu sinni, leikkonunni Önnu Osceola, á dögunum. Hamm er 55 ára en Osceola er 38 ára. 

Heimildarmaður People staðfesti að stjörnuhjónin hefðu eignast son. Talsmaður hjónanna hefur ekki tjáð sig um fæðingu barnsins. Hjónin kynntust árið 2015 þegar Osceola fór með lítið hlutverk í þáttunum Mad Man. Þau trúlofuðu sig árið 2022 og gengu í hjónaband árið 2023. 

Skipti um skoðun

Hamm var áður fyrr á þeirri skoðun að hann vildi ekki eignast börn en hann var í sambandi með leikkonunni Jennifer Westfleldt í tæpa tvo áratugi. Hamm gaf sjálfur til kynna árið 2022 að samband hans við Osceola hefði breytt sýn hans á framtíðina. Í viðtali við Howard Stern sagði hann að hún hefði opnað fyrir möguleikann á hjónabandi, börnum og „nýrri útgáfu af hamingju og lífi“.

Jon Hamm og eiginkona hans Anna Osceola.

Jon Hamm og eiginkona hans Anna Osceola. AFP

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab