Snorri hélt útgáfutónleika daginn eftir andlát föður síns: „Þetta var bara besti staður sem ég gat verið á“

Snorri Helgason heldur tónleika á Fantasíu á morgun, laugardaginn 21. nóvember. Hann verður þar ásamt hljómsveit sinni, Snákunum, en þessi hópur hefur ekki komið saman síðan á útgáfutónleikunum fyrir plötu Snorra, Borgartún, fyrir um ári.

Snorri, sem var gestur vikunnar í hlaðvarpinu Popparasögur, kom fram á sjónarsviðið með Sprengjuhöllinni fyrir um 20 árum og hljómsveitin bókstaflega keyrði yfir Ísland og íslenskan tónlistarbransa misserin þar á eftir. Síðan hefur hann gefið út sjö sólóplötur sem hafa innihaldið fjölmörg vinsæl lög.

Í viðtalinu talar hann um hvernig það er að vera tónlistarmaður á Íslandi í dag, merkilegan feril Sprengjuhallarinnar og eitt þeirra vinsælasta lag, Verum í sambandi, upphaf sólóferilsins og tímann þegar hann bjó í London, að læra að ná sambandi við áhorfendur, kosti og galla íslenska tónlistarbransans, vinsælustu lögin sín og það að halda alltaf áfram að halda áfram.

Eftirminnilegir útgáfutónleikar

Útgáfutónleikarnir fyrir Borgartún sem voru haldnir í Austurbæjarbíói fyrir um ári eru Snorra eftirminnilegir. Faðir hans, tónlistar- og fjölmiðlamaðurinn Helgi Pétursson, hafði verið veikur um tíma og lést nóttina fyrir tónleikana. Snorri segir að það hafi aldrei komið til greina að hætta við. Hann var enn að reyna að meðtaka það sem hafði gerst og fannst gott að hafa skýrt verkefni fram undan.

Með honum á sviðinu var hljómsveit skipuð vinum og samstarfsmönnum sem hann hafði þekkt og unnið með árum saman. Í salnum voru fjölskylda hans og vinir. „Þetta var bara besti staður sem ég gat verið á,“ segir Snorri sem viðurkennir að kvöldið hafi verið erfitt en jafnframt fallegt og heilandi. Eftir tónleikana var Snorri hins vegar gjörsamlega búinn á því og hafði ekki mikinn áhuga á því að koma fram vikurnar og mánuðina þar á eftir.

Nú eru Snákarnir að koma saman á ný. Þeir hafa loksins fundið dagsetningu sem hentar öllum og Snorri segist hlakka mikið til að spila aftur með þeim. Eftir fyrstu æfinguna hafi hann fundið hversu gaman væri að vera kominn aftur í þetta samstarf.

 

Uppgangur, æsingur og tólf manns á Grand Rokk

Snorri kom fram á sjónarsviðið ásamt Sprengjuhöllinni árið 2006 og fyrsta platan fylgdi árið eftir. Hljómsveitin náði fljótt miklum vinsældum. Lögin fengu góða spilun, tónleikarnir voru vel sóttir og sveitin fékk tækifæri til að spila erlendis, meðal annars á South by Southwest-hátíðinni í Austin í Texas í Bandaríkjunum og í tónleikaferðum um Kanada og Þýskaland.

Sprengjuhöllin vildi gera íslenskt popp sem næði til fólks, fengi spilun í útvarpi og kæmist á stóra tónleikastaði. Þeir voru metnaðarfullir, bjartsýnir og höfðu mikla trú á eigin verkefni. „Við vorum yfirgengilega kokhreystir,“ segir Snorri þegar hann rifjar upp þennan tíma. Meðbyrinn var svo mikill að þeim fannst árangurinn nánast sjálfsagður.

Sprengjuhöllin gaf út tvær plötur á skömmum tíma. Sú fyrri, Tímarnir okkar, var gríðarlega vinsæl og innihélt lög eins Keyrum yfir Ísland, Glúmur, Verum í sambandi og titillagið, Tímarnir okkar, en sú síðari, Bestu kveðjur, var unnin af miklum hraða og innihélt um sextán lög. Platan fékk ekki sömu viðtökur og frumraunin. Snorri man sérstaklega eftir tónleikum á Grand Rokk þar sem aðeins um tólf manns mættu. „Það var bara svona algjört hrun í einhverri tengingu okkar við fólk,“ rifjar Snorri upp.

Í Popparasögum rifjar Snorri upp að hann og Bergur Ebbi, félagi hans úr Sprengjuhöllinni, hafi verið í viðtali á Bylgjunni í október 2008 til að kynna fyrsta lagið af seinni plötunni. Eftir viðtalið horfðu þeir á beina útsendingu frá „Guð blessi Ísland“-ræðu Geirs H. Haarde, ásamt Hemma Gunn, Ásgeiri Kolbeins og fleirum sem voru samankomnir í sameiginlegu rými útvarpsstöðvarinnar við Suðurlandsbraut. „Það var svo ógeðslega fyndið að vera í þessum félagsskap að horfa á þetta,“ segir Snorri. Þeir fundu að eitthvað stórt væri að breytast í samfélaginu, þótt þeir hefðu ekki hugmynd um hversu mikil áhrif það myndi hafa.

 

Framhald hjá Sprengjuhöllinni

Á næsta ári eru tuttugu ár liðin frá því fyrri plata Sprengjuhallarinnar var gefin út og hafa einhverjir velt upp þeirri hugmynd hvort hljómsveitin muni koma aftur fram af því tilefni. Snorri telur það ólíklegt þar sem tveir meðlimir búa í Berlín, aðrir hafa færst yfir í önnur störf og flestir hafa ekki starfað sem tónlistarmenn með sama hætti síðustu tvo áratugi. Allir eiga fjölskyldur og það hefur reynst erfitt að finna tíma til að hittast og æfa.

Fréttir þess efnis að Sprengjuhöllin væri að fara að gefa út nýja plötu hafi jafnframt byggst á misskilningi. Atli Bollason, hljómborðsleikari sveitarinnar, á enn fyrirtækið Sprengjuhöllin ehf. og notar það í tengslum við eigið tónlistarverkefni. Styrkur sem hann fékk í nafni fyrirtækisins varð til þess að fréttir bárust af væntanlegri plötu sveitarinnar.

Nýtt upphaf erlendis

Þegar Bergur Ebbi hætti í Sprengjuhöllinni árið 2009 fór að fjara undan hljómsveitinni. Snorri var þó ekki tilbúinn að hætta í tónlist. Hann hafði lengi haft áhuga á þjóðlagatónlist og vildi kanna aðrar leiðir í eigin tónlistarsköpun. Hann hóf sólóferil og reyndi jafnframt að byggja upp tónlistarferil erlendis. Tónlistin var gefin út á þýskumælandi mörkuðum, hann fór í tónleikaferðir og flutti til London þar sem hann reyndi að koma sér á framfæri sem tónlistarmaður.

Í Sprengjuhöllinni hafði Snorri verið hluti af hópi þar sem aðrir meðlimir tóku á sig að vera í samskiptum við áhorfendur. Hann vildi læra að standa einn á sviðinu og ná sjálfur sambandi við fólk. „Ég þurfti svo mikið bara að rjúfa mig út úr þessu öllu saman og læra bara að standa á eigin fótum,“ segir Snorri.

Hann gaf út þrjár plötur á þýskumælandi mörkuðum, spilaði í háskólabæjum og reyndi að koma sér upp tengslaneti. Eftir nokkur ár ákvað hann að snúa aftur til Íslands og einbeita sér að heimamarkaðnum. „Það er alveg svona grundvallarpæling hjá mér að halda alltaf áfram,“ segir Snorri.

Nýjar hugmyndir þurfa pláss

Snorri byggði upp samstarf við hóp tónlistarmanna og gaf út plötur í ólíkum stílum, meðal annars Vittu til, Einsemd, barnaplötuna Bland í poka, Margt býr í þokunni, sem byggði á íslenskum þjóðsögum, og Víðihlíð. „Ég er alltaf að vinna með það að tæma út lager sem ég á til þess að búa til pláss fyrir nýjar hugmyndir,“ segir Snorri í hlaðvarpinu.

Platan Borgartún, sem kom út í fyrra, naut mikilla vinsælda. Hugmyndin að plötunni kviknaði þegar hann sat fastur í umferðinni í Borgartúni og hlustaði á bandarískan tónlistarmann syngja um einhverja götu í Los Angeles. Hann fór að velta því fyrir sér hvers vegna hann gæti ekki gert það sama með Borgartúnið. Úr varð hugmynd að plötu þar sem gatan yrði eins konar leiksvið og íslenskt samfélag smækkað niður í nokkrar húsaraðir. Vinnuheitið var í fyrstu Borgartún – The Musical.

Hugmyndin var að skapa heildstætt sögusvið. Í laginu Borgartún er Signý, kona sem vinnur þar en er óhamingjusöm í aðstæðum sínum. Í laginu Aron er ungur fótboltastrákur sem virðist hafa allt með sér en lítið kemur í ljós þegar skyggnst er undir yfirborðið. Platan fékk góðar viðtökur og hafa þó nokkur lög fengið góða útvarpsspilun.

Aftur í plokkið

Snorri vinnur nú að nýrri plötu í Hljóðrita í Hafnarfirði sem hann stefnir á að gefa út á næsta ári. Þar túlkar hann meðal annars lög eftir aðra höfunda, með kassagítarinn í forgrunni. Meðal laganna eru Fuglinn er floginn eftir Utangarðsmenn, Atlavík 84 eftir Rúnk og Eina nótt, lag sem faðir hans söng með Ríó Tríó á sínum tíma. Það lag kom út fyrir stuttu og situr nú í efsta sæti Vinsældalista Rásar 2.

Þegar Snorri talar um framtíðina eru engin stór yfirlýst markmið eða dramatískar yfirlýsingar. Hann vill fá að gera tónlist sem honum finnst áhugaverð, halda áfram að sjá fyrir fjölskyldunni og njóta þess að vinna að verkefnum sem honum þykir vænt um. Hann vitnar gjarnan í Bob Dylan þegar hann talar um þessa nálgun: „The only thing I knew how to do was to keep on keepin' on.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab